Stærstu manngerðu ísgöng heims áætluð í Langjökli 2. janúar 2013 21:00 Ísgöng í Langjökli. Verði áætlanir að veruleika verða grafin 300 metra göng í jökulinn. Innsti hluti þeirra verður á 30 metra dýpi og þar verða útbúnir hellar fyrir ferðamenn. Mynd/Vilhelm
Umhverfisstofnun er jákvæð í garð 300 metra langra ísganga og hella í Langjökli. Heilbrigðiseftirlit hefur áhyggjur af mengun. Á að laða að 20 þúsund gesti á ári, en þó lítið umfram þá sem fara á jökulinn. Fyrirhuguð 300 metra löng ísgöng í Langjökli yrðu stærstu manngerðu ísgöng í heimi, verði af framkvæmdinni. Verkfræðistofan Efla hefur unnið að verkefninu ásamt nokkrum ferðaþjónustuaðilum frá 2010. Umhverfisstofnun telur framkvæmdina ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og hún sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í tilkynningu Eflu til Skipulagsstofnunar kemur fram að með verkefninu eigi að gera Langjökul aðgengilegan ferðamönnum og vísindasamfélaginu á nýjan hátt, þar sem hægt verði að ganga ofan í jökulinn. "Inni í göngunum mun fólk sjá hvernig jökullinn er að innan, hvernig snjór sem fellur á jökulinn verður að hjarni og loks að þéttum ís. Ætlunin er að inni í göngunum verði einnig settur fram fróðleikur um jöklana og áhrif hlýnunar andrúmsloftsins,“ segir í skýrslunni. Þá mætti einnig móta listaverk í ísinn. Ferðaþjónustuaðilar á svæðinu eru hvatamenn að hugmyndinni, en líklega yrðu þetta fyrstu göng í hveljökli í heiminum sem yrðu opin almenningi. Í grófri rekstraráætlun kemur fram að áætlað sé að um tuttugu þúsund gestir sæki göngin heim á ári, en allt að áttatíu prósent þeirra heimsæki jökulinn hvort eð er. Aukningin væri því um 4.000 manns. Stærstur hluti gesta mun koma upp á jökulinn við fjallaskálann Jaka á Geitlandi, en göngin yrðu staðsett í 1.250 metra hæð. "Gert er ráð fyrir að fyrst verði grafin út um 300 m löng göng í ísinn. Innsti hluti þeirra verður þá á um 30 metra dýpi í jöklinum, í þéttum jökulís, og þar er gert ráð fyrir að útbúnir verði eins konar hellar þar sem tekið verður á móti ferðamönnum,“ segir í skýrslu Eflu.- kópGöngin. Ferðamenn þurfa að vera vel búnir, með hjálma og mannbrodda til að fara ofan í göngin.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Fleiri fréttir Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Sjá meira