Loforð Framsóknarflokksins skapar óvissu á fasteignamarkaði Höskuldur Kári Schram skrifar 9. júní 2013 12:00
Dæmi eru um að íbúðareigendur haldi að sér höndum á fasteignamarkaði vegna loforða ríkisstjórnarinnar í lánamálum. Fólk óttast að fá engar afskriftir af verðtryggðum lánum ef það selur íbúð sína áður en fyrirhugaðar aðgerðir í skuldamálum taka gildi. Fasteignamarkaðurinn hefur á síðustu árum verið á hægri uppleið eftir bankahrun. 485 samningum vegna fasteignakaupa var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í maímánuði sem er þreföldun miðað við sama mánuð árið 2009. Loforð ríkisstjórnarinnar um afskriftir íbúðalána hefur hins vegar valdið því að íbúðaeigendur halda að sér höndum á fasteignamarkaði. Kristján Baldursson er löggiltur fasteignasali og eigandi fasteignasölunnar Trausta. „Ég hef fengið mikið af símtölum og fyrirspurnum frá fólki sem að þarf af einhverri ástæðu að skipta um húsnæði. Stækka við sig eða minnka eða eitthvað slíkt en leggur ekki í það vegna þess að það hefur ekki leikreglurnar á hreinu varðandi þessi kosningaloforð sem komu fram í síðustu kosningum. Sp. fréttamanns: Fólk vill bíða og sjá hvað gerist? „Já þá er það að velta fyrir sér hvort það muni tapa einhverjum réttindum þegar og ef kemur til þessarar leiðréttingar,“ svarar Kristján. Kristján segir mikilvægt að ríkisstjórnin skýri málið sem fyrst. „Það er ábyrgðarhlutur að koma fram með svona loforð fyrir kosningar og ef þetta gengur eftir og kemur til efnda þá er þetta hið besta mál. Stjórnvöldum ber skylda til að í fyrsta lagi setja tímaramma á framkvæmdina og eins að kynna landanum leikreglurnar,“ segir Kristján og bætir við að fólk þurfi þó ekki að óttast að tapa réttindum. „Það er lagaákvæði þarna í lögum um vexti og verðtryggingu þar sem þetta er afar skýrt og það er tekið mjög vel á þessu í breytingarlögum frá 2010. Fólk tapar engum rétti og leiðréttingin fer alltaf til þeirra sem eiga hana þeirra sem áttu lánið á sínum tíma,“ segir Kristján að lokum.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira