Spáð vonskuveðri um allt land 26. janúar 2013 17:08
Veður fer ört versnandi á landinu og verður enn verra síðdegis og í kvöld. Þá gengur í austan og norðaustan hvassviðri eða storm um mest allt land. Um landið norðanvert má gera ráð fyrir snjókomu eða éljum og skafrenningi og slæmu skyggni, einkum á fjallvegum en á Austfjörðum er slydda eða rigning á láglendi en snjókoma til fjalla frá því síðdegis í dag. Þetta kemur fram hjá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Við suðurströndina hvessir fyrr, en fyrir hádegi má búast við hvössum vindhviðum undir Eyjafjöllum. Í kvöld hvessir svo enn frekar Suðaustanlands, og fer að rigna. Suðaustan stormur, 18-25 m/s verður þar í kvöld og nótt og mjög hvassar vindhviður undir Vatnajökli. Á Suðvesturlandi hefur snjóað talsvert og skyggni og færð geta því spillst fljótt þegar fer að hvessa síðdegis í dag og í kvöld. Ísingarhætta er til staðar, einkum á sunnanverðu landinu þar sem léttir til í kvöld og nótt.Hálka á heiðum Á Sandskeiði og í Þrengslum er hálka og hálka og skafrenningur á Hellisheiði sem og á Lyngdalsheiði en þæfingsfærð og skafrenningur á Mosfellsheiði, annars er hálka eða snjóþekja á flestum vegum á Suðurlandi. Hálka er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Vatnaleið en annars er snjóþekja og hálka á Snæfellsnesi. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Fróðárheiði. Hálka eða hálkublettir eru á Vesturlandi. Á Vestfjörðum er víðast hvar hálka eða hálkublettir en snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum og Kleifaheiði. Hálkublettir og óveður er á Hjallahálsi en þæfingsfærð er á Klettshálsi en einnig á leiðinni norður í Árneshrepp.Ófært á Hólasandi Á Norðurlandi er hálka á flestum leiðum og sumstaðar éljagangur. Þó er snjóþekja og skafrenningur á Öxnadalsheiði. Þungfært og óveður er á Mývatnsöræfum og í raun ekkert ferðaveður. Ófært er á Hólasandi. Hálka og skafrenningur er á Hófaskarðsleið og snjóþekja á Hófaskarði. Það er svo svipuð færð á Austurlandi, hálka eða hálkublettir mjög víða. Hálka og skafrenningur er á Vopnafjarðarheiði og snjóþekja og skafrenningur á Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði. Hálka og éljagangur er á Oddskarði. Með suðausturströndinni er að mestu hálkublettir eða hálka en þó autt á köflum.Þungatakmarkanir Á Austurlandi er ásþungi takmarkaður við 10 tonn á Suðurfjarðarvegi, frá Vattarnesvegi í botni Fáskrúðsfjarðar að Hringvegi við Breiðdalsvík og þaðan á Hringveginum suður um að Hafnarvegi.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá staðsetningu hreindýra hér.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Sjá meira