Jafn mikið fjöregg og Harpan í Reykjavík Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 6. júlí 2013 10:00 Nýja Fosshótelið á Patreksfirði hefur áður verið sláturhús og frystihús en varð svo í júní síðastliðnum Fosshótelið á Patreksfirði. Mynd/Jón Sigurður
Mikil gróska hefur orðið í ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum samhliða opnun 40 herbergja hótels á Patreksfirði í júníbyrjun, segja Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, og Jóhann Svavarsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Westfjords Adventures. Fyrir eru fjögur gistiheimili á Patreksfirði sem samanlagt eru með 32 herbergi, segir Díana Jóhannsdóttir, markaðsfulltrúi Fjórðungssambands Vestfirðinga. Þar að auki eru mun fleiri gistiheimili á sunnanverðum Vestfjörðum en þetta er í fyrsta sinn sem svo stór hótel er starfrækt á svæðinu. „Ég segi stundum í gríni en samt sem áður í alvöru að opnun hótelsins á Patreksfirði hafi álíka áhrif hér og tilkoma Hörpunnar fyrir Reykjavík,“ segir Ásthildur. „Hótelið er hafnarmannvirki ferðaþjónustunnar á svæðinu og styður alla þá uppbyggingu sem hér er að verða og eflir samfélagið á allan hátt.“ Jóhann var áður með lítið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfði sig í leiðsögn með gönguhópa um sunnanverða Vestfirði. En með tilkomu hótelsins opnuðust frekari tækifæri svo hann kom ásamt fleirum Westfjord Adventures á koppinn. „Það er alveg ljóst að fólk er ekki að koma til Patreksfjarðar bara til að gista, það kemur til að gera eitthvað,“ segir hann. „Og við sköpum valkostina og bjóðum því upp á rútuferðir með leiðsögumönnum, við sækjum okkar fólk á flugvöllinn á Bíldudal, við erum með umboð fyrir Bílaleigu Akureyrar, við erum auðvitað enn þá með gönguferðir um nánast alla sunnanverða Vestfirði og svo hjólaferðir, hjólaleigu, jeppaferðir, bátsferðir og svo starfrækjum við upplýsingamiðstöð fyrir svæðið. Þetta er náttúrulega ekki gert nema með því að fara út í miklar fjárfestingar.“ Jóhann segir að auk sín séu þrír fastráðnir starfsmenn hjá fyrirtækinu. Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Fosshótela, segir að nýtingin á nýja hótelinu á Patreksfirði hafi verið betri en hann hafði búist við. „Ég segi ekki að þetta hafi komið okkur á óvart, við höfum auðvitað trú á svæðinu,“ segir Davíð Torfi. „En það er ekki sjálfgefið að þetta fari svona fyrsta sumarið.“ Ekki er þó öll nýja flóran í ferðamennskunni sett á reikning hótelsins en hnúfubakar hafa síðustu ár vanið komu sína á sunnanverða Vestfirði svo hægt er orðið að bjóða upp á hvalaskoðun á svæðinu sem er nýlunda.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira