Bandaríkin hafa sent yfirvöldum í Venúsúela framsalsbeiðni vegna Snowden Hjörtur Hjartarson skrifar 6. júlí 2013 18:43
Bandaríska uppljóstraranum, Edward Snowden hefur verið boðið pólitískt hæli í Venúsuela og Níkaragúa. Ljóst þykir þó að það verður enginn hægðarleikur fyrir hann að komast til Suður-Ameríku þar sem líklegt þykir að fjölmörg Evrópulönd muni ekki hleypa flugvél Snowden um lofthelgi landanna. Snowden hefur nú í 14 daga dvalið í flugstöð í Moskvu þar sem umsóknum hans víða um heim um pólitískt hæli hefur ýmist verið hafnað eða ekki svarað. Á fimmtudaginn ákvað alþingi að hafna tillögu minnihlutans um að láta þingnefnd ræða um hvort veita ætti Snowden íslenskan ríkisborgararétt. En nú virðist sem einhverskonar lausn sé í sjónmáli fyrir Snowden. Forseti Níkaragúa, Daniel Ortega sagði í gær að honum yrði tekið opnum örmum ef aðstæður til slíks væru heppilegar. Nicolas Maduro, forseti Venúsúela gekk jafnvel lengra í ræðu sinni á þjóðhátíðardegi landsins þar sem hann sagði það skyldu þjóðar sinnar að veita Snowden hæli og skjól fyrir ofsóknum yfirvalda í Bandaríkjunum. Og almenningur í Venúsúela virðist honum sammála. Það gæti þó reynst Snowden erfitt að komast til Venúsúela. Engin bein flug eru á milli Moskvu og Caracas og því þyrfti hann að millilenda ef hann ferðast ekki með einkaþotu. Það gæti líka reynst honum þrautin þyngri þar sem fjölmargar þjóðir í Evrópu munu líklega ekki leyfa vélinni að fljúga um lofthelgi landanna. Aukinheldur greindi breska blaðið The Guardian frá því nú síðdegis að bandaríkjamenn hafi nú þegar sent yfirvöldum í Venúsuela beiðni um að hann verði handtekinn og framseldur til Bandaríkjanna komi hann til landsins. Það stefnir því í að Snowden verði enn um sinn fastur í flugstöð í Moskvu.
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira