Nauðgaði félaga sínum 21. maí 2013 17:46 Héraðsdómur Reykjaness.
Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að nauðga vini sínum. Hinn dæmdi átti afmæli þegar brotið átti sér stað í desember árið 2012. Sama kvöld viðurkenndi hann fyrir félögum sínum í afmælinu að hann væri tvíkynhneigður og tóku þeir því vel samkvæmt dómsorði. Eftir að hafa farið út að skemmta sér skiluðu nokkrir félagar sér aftur heim til brotaþolans. Þar spjölluðu þeir í stutta stund en fóru svo að sofa. Brotaþolinn vaknaði svo við það að félagi hans var að hafa við hann munnmök en í fyrstu taldi hann að þetta væri kærasta sín. Hann áttaði sig þó fljótt á því að þetta var félagi sinn sem hafið komið út úr skápnum fyrr um kvöldið. Í dómsorði segir að brotaþolinn hefði fengið sjokk og ýtt honum frá sér. Hann sofnaði aftur en síðan endurtók þetta sig seinna um morguninn, brotaþolinn vaknaði aftur og nú byrsti hann sig við félagann sem lét þá af verknaðinum. Brotaþolanum var nokkuð brugðið daginn eftir og síðar ákvað hann að kæra manninn fyrir kynferðisbrot. Sá hélt því fram að brotaþolinn hefði verið samþykkur því sem hann gerði, en dómurum þótti einsýnt að fórnarlambið hefði ekki getað veitt mótspyrnu vegna mikillar áfengisneyslu auk þess sem hann hafði neytt fíkniefna fyrr um nóttina. Var svo litið til þess að gerandinn bað fórnarlambið tvívegis afsökunar á framferði sínu, og þótti dómurum það áleitin spurning hversvegna hann hefði gert það ef brotaþolinn hefði verið samþykkur munnmökunum. Ekki þótti rétt að skilorðsbinda refsingu mannsins vegna alvarleika brotsins. Hann þarf einnig að greiða fórnarlambi sínu 800 þúsund krónur í miskabætur.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira