Bak við tjöldin á Drullastu myndböndunum Tinni Sveinsson skrifar 31. júlí 2013 15:30 Þátttakendur tóku drullunni af mikilli yfirvegun með gleðina að vopni.
Verkefnið Drullastu til að leggja góðu málefni lið hefur vakið mikla athygli síðustu tvær vikurnar. Gerð voru fjöldi myndbanda til að vekja athygli á verkefninu þar sem þekktir Íslendingar létu henda drullu yfir sig til að styðja gott málefni. Síðan myndböndin fóru í loftið hér á Vísi hefur verið horft á þau um fjörutíu þúsund sinnum. Drullumyndböndin eru gerð til að vekja athygli á síðunni VISIR.IS/DRULLASTU en fram að Verslunarmannahelgi fer þar fram kosning þar sem almenningur getur haft áhrif á það hvernig milljón króna góðgerðarsjóður skiptist á milli fjögurra góðgerðarfélaga. Framleiðslufyrirtækið Tjarnargatan stendur á bak við verkefnið og í myndbandinu hér að neðan er hægt að skyggnast bak við tjöldin á því þegar Drullastu myndböndin voru tekin upp. Einnig er hægt að sjá myndbandið á sjónvarpsvef Vísis en eins og gefur að skilja einkenndi mikil gleði tökurnar. Verkefnið er sett af stað af Mýrarboltanum í tilefni af hinu árlega Mýrarboltamóti á Ísafirði um Verslunarmannahelgina. Landsbankinn, Avis og Carlsberg lögðu til milljón króna góðgerðasjóðinn sem skiptist hlutfallslega á milli félaganna fjögurra eftir atkvæðafjölda. Netverjar eru síðan eindregið hvattir til að deila vali sínu í kosningunni áfram með Facebook-vinum sínum til að flestir láti til sín taka í valinu á milli félaga.Taktu þátt hér! Hér fyrir neðan má sjá nokkur vinsæl drullumyndbönd sem gengið hafa manna á milli á netinu síðustu vikurnar.Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, reynir eftir fremsta megni að skýla sig fyrir drullunni en fær það samt sem áður óþvegið í nafni Barnaheilla. Steindi Jr. er fær í flestan sjó en verður þó meira en lítið undrandi þegar drullan skellur á honum. Hann tekur þó skellinn með stæl og gerir það fyrir ADHD samtökin:Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður lætur sig vaða í drulluna til styrktar Barnaheillum.Hildur Lilliendahl er líklega ein sú allra sjóaðasta í því að taka við skítkasti úr hinum ýmsu áttum. Hér er hún hinsvegar að upplifa nýja og bókstaflegri útfærslu af fyrirbærinu. Hildi líkar það ekkert sérstaklega illa, enda stendur hún í þessu fyrir gott málefni og leggur sín lóð á vogarskálarnar fyrir Þroskahjálp. Hægt er að horfa á öll Drullastu myndböndin hér á sjónvarpssíðu Vísis. Við hvetjum einnig alla til að taka þátt í því að úthluta peningunum til góðgerðarfélaganna. Það kostar ekkert að taka þátt hér á visir.is/drullastu.
Tengdar fréttir Frægir Íslendingar láta drulla yfir sig Hver er ekki til í smádrullu fyrir gott málefni? Að minnsta kosti ekki þeir tugir einstaklinga sem tóku þátt í skemmtilegu drulluverkefni á vegum Mýrarboltans og Vísis. Þessir snillingar áttu ekki í nokkrum vandræðum með að láta drulla yfir sig og eru myndbönd af öllu þessu fólki byrjuð að vekja mikla athygli. 16. júlí 2013 15:15 Mest lesið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Tónlist Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Lífið Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Tónlist Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tilkynntu óvart dauða konungsins Lífið Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Lífið samstarf Fleiri fréttir „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Sjá meira
Frægir Íslendingar láta drulla yfir sig Hver er ekki til í smádrullu fyrir gott málefni? Að minnsta kosti ekki þeir tugir einstaklinga sem tóku þátt í skemmtilegu drulluverkefni á vegum Mýrarboltans og Vísis. Þessir snillingar áttu ekki í nokkrum vandræðum með að láta drulla yfir sig og eru myndbönd af öllu þessu fólki byrjuð að vekja mikla athygli. 16. júlí 2013 15:15