12.300 í atvinnuleit í apríl 23. maí 2013 06:00 Í atvinnuleit Alla jafna dregur úr skráðu atvinnuleysi á sumrin. Mæling Hagstofunnar sýnir hins vegar vegna skólaloka aukið atvinnuleysi milli apríl og maí. Nordicphotos/Getty
Atvinnuleysi var 6,6 prósent í apríl samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar, sem segir að í mánuðinum hafi 12.300 verið án vinnu. Á sama tíma var skráð atvinnuleysi 4,9 prósent samkvæmt mælingu Vinnumálastofnunar, sem segir að í mánuðinum hafi 7.998 að meðaltali verið atvinnulausir. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru í apríl að jafnaði 186.800 manns á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka 82,3 prósent. Hagstofan birti um leið árstíðarleiðréttar tölur sem eiga að gera samanburð milli mánaða raunhæfari og segja betur til um almenna þróun á vinnumarkaði. Samkvæmt þeim voru 185.200 á vinnumarkaði í apríl og atvinnuþátttaka 80,8 prósent. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi er líka heldur minna, eða 5,8 prósent. Í umfjöllun Greiningar Íslandsbanka kemur fram að sé tekið mið af fyrsta þriðjungi ársins hafi skráð atvinnuleysi að jafnaði mælst 5,3 prósent, samanborið við 7,0 prósent á sama tíma í fyrra og 8,4 prósent árið þar á undan. Samkvæmt mælingu Hagstofunnar hafi atvinnuleysi hins vegar að jafnaði verið 6,0 prósent fyrstu fjóra mánuði ársins, 7,3 prósent í fyrra og 8,3 prósent árið þar á undan. „Hefur því verulega dregið úr atvinnuleysi á milli ára, og benda þessar tölur til þess að staðan á vinnumarkaði hafi batnað töluvert,“ segir í umfjöllun Greiningar. „Þó ber að halda til haga áhrifunum af bráðabirgðaákvæðinu sem gerði atvinnuleitendum kleift að fá greiddar atvinnuleysistryggingar í allt að fjögur ár. Það rann út um síðustu áramót og hefur skráð atvinnuleysi af þeim sökum mælst nokkuð minna á þessu ári.“ Bent er á að áhrifa þessa gæti ekki í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. „Gera má ráð fyrir að skráð atvinnuleysi minnki nær stöðugt til og með september næstkomandi,“ segir í umfjöllun Greiningar og bent á að almennt minnki skráð atvinnuleysi á milli apríl og maí. Þannig hafi atvinnuleysi þá mánuði í fyrra farið úr 6,5 prósentum í 5,6 prósent. „Þess má geta að þróun atvinnuleysis samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar er almennt með allt öðrum hætti á milli þessara sömu mánaða. Þannig eykst atvinnuleysi almennt samkvæmt Hagstofunni á milli apríl og maí, en sú aukning er árstíðarbundin og tengist skólalokum, og táknar því ekki að ástandið á vinnumarkaði sé eitthvað verra.“olikr@frettabladid.is
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira