Segir eðlilegt að íhuga vantraust Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. janúar 2013 17:19
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að stjórnarandstaðan hljóti að íhuga vantrauststillögu á ríkisstjórnina við þær aðstæður sem nú eru uppi. Stjórnin hafi ekki lengur meirihluta á þingi og þá spili niðurstaða Icesave málsins inn í. Eins og Vísir greindi frá í dag íhuga sjálfstæðismenn og framsóknarmenn að leggja fram vantrauststillögu. Sigurður Ingi segir, í samtali við Reykjavík síðdegis, að ríkisstjórnin hafi enn ekki beðist afsökunar á málflutningi sínum í Icesave-málinu „Og hafa satt best að segja forherst í því og látið þau orð falla að ef málið hefði farið öðruvísi þá hefði verið rétt að aðrir hefðu beðist afsökunar. Það er í því ljósi sem menn hljóta að velta fyrir sér að setja fram vantraust. En það er líka alveg ljóst að í okkar samanburðarlöndum, Norðurlöndunum til að mynda, að ríkisstjórn sem hefði tapað tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum og endirinn orðið eins gleðilegur og hann var að þá hefði slík stjórn beðist lausnar," segir Sigurður Ingi. Hann bíði því eftir því að ríkisstjórnin biðjist afsökunar eða íhugi stöðu sína. Síðast var það Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem lagði fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Það var í apríl 2011, rétt eftir seinni þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Tillagan var fellt með 33 atkvæðum gegn 30.
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sjá meira