Síbrotamaður ákærður fyrir rán með kúbeini Stígur Helgason skrifar 20. júní 2013 08:00 Sérsveitarmenn yfirbuguðu Alexander í Grímsey fyrir fimm árum. Hann hafði sveiflað hnífi og sleggju og haft í hótunum við sjóstangveiðifólk.
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tveimur Akureyringum, 26 ára manni og 29 ára konu, fyrir vopnað rán og sérstaklega hættulega líkamsárás í júní 2012. Í ákærunni er þeim gefið að sök að hafa sammælst um það 3. júní í fyrra að fremja rán í Akureyrarapóteki í verslunarmiðstöðinni Kaupangi. Þau hafi farið grímuklædd og vopnuð bæði hnífum og kúbeini inn um opnar dyr á starfsmannainngangi apóteksins og lent þar í átökum við tæplega fertugan starfsmann. Í ákærunni segir að konan hafi hrint starfsmanninum þegar hann reyndi að halda félaga hennar, sem heitir Alexander Jóhannesson og er margdæmdur ofbeldismaður. Alexander er þá sagður hafa slegið starfsmanninn tvisvar til þrisvar sinnum með kúbeininu, þar af einu sinni í höfuðið, hrifsað með sér peninga sem lágu á borði og í kjölfarið hafi þau bæði stokkið á flótta. Starfsmaðurinn hlaut bólgur á hnakka og eymsli á hálsi. Jafnframt er Alexander ákærður fyrir tvö smávægileg fíkniefnabrot. Ákæran var gefin út síðasta dag maímánaðar og verður þingfest í dag.Stakk þrjá og gekk berserksgang í Grímsey Alexander Jóhannesson á langan sakaferil að baki sem hófst þegar hann var átján og var sektaður fyrir fíkniefnabrot. Síðan hefur hann hlotið nokkra dóma fyrir ofbeldisverk, auðgunar- og fíkniefnabrot. Í júlí 2008 komst hann í fréttir þegar hann gekk berserksgang vopnaður hníf og sleggu á fögnuði í tengslum við árlega sjóstangveiðihátíð í Grímsey, hafði í hótunum við fólk og veittist að sérsveitarmönnum sem þangað voru komnir til að handtaka hann. Fyrir það fékk hann fjögurra mánaða fangelsisdóm. Mánuði áður hafði hann fengið 20 mánaða dóm fyrir að stinga þrjá menn með hníf á Akureyri. Við ákvörðun þeirrar refsingar var tekið tillit til ungs aldurs og þess að hann var byrjaður að snúa lífi sínu á réttan kjöl.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira