Innlent

Umferðaróhapp á Kringlumýrarbraut

Jóhannes Stefánsson skrifar
Tafir urðu á umferð vegna óhappsins.
Tafir urðu á umferð vegna óhappsins. Friðrik Þór
Þrír bílar lentu rétt í þessu í umferðaróhappi þar sem tveir bílar lentu saman þegar sá þriðji keyrði á vegrið. Einn bíllinn er mikið skemmdur, en hann ók aftan á rútubifreið. Bílarnir komu úr sitthvorri áttinni.

Samkvæmt upplýsingum frá umferðardeild lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu er ekki talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki. Sjúkrabíll mun þó hafa verið kallaður til og að minnsta kosti einn fluttur á slysadeild.

Umferð um svæðið er lokuð þar til lögregla klárar að athafna sig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×