Tilnefning Láru Hönnu dregur dilk á eftir sér Jakob Bjarnar skrifar 17. júlí 2013 12:59 Illugi Gunnarsson er handhafi eina hlutabréfsins í RÚV ohf., Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarkona hans, segir Láru Hönnu hafa skilgreint sig sjálfa sem starfsmann 365 en Katrín Jakobsdóttir telur ekki úr vegi að skoða hæfi allra sem vilja setjast í stjórn RÚV.
Katrín Jakobsdóttir telur ekki óeðlilegt að fleiri en Láru Hönnu Einarsdóttur sé gert að sanna hæfi sitt til að taka sæti í stjórn RÚV ohf. Ráðuneytið segir Láru Hönnu hafa skilgreint sig sjálf sem starfsmann 365. Fréttastofan hefur greint frá meintum ágreiningi um að Lára Hanna Einarsdóttir, þýðandi og bloggari, taki sæti í stjórn RÚV. Lára Hanna er fulltrúi Pírata, átti að vera aðalmaður, en Píratar breyttu og tefldu Pétri Gunnarssyni rithöfundi fram sem aðalmanni en Láru Hönnu til vara í þeirri von að það yrði til að samkomulag um að minnihlutinn fengi fjóra fulltrúa af níu í stjórn Ríkisútvarpsins en ekki þrjá, héldi. Birgitta Jónsdóttir þingmaður hefur sagt, í samtali við Fréttablaðið, að hún telji, án þess að geta fullyrt um það, að Lára Hanna sé illa séð af valdamönnum í stjórn RÚV. Í leynilegri atkvæðagreiðslu varð það svo ofan á að fulltrúar minnihlutans eru fjórir og Lára Hanna var kosin af Alþingi sem varamaður í stjórn.Bréf frá lögmanni ráðuneytisins Hluthafafundur, sem ekki er vitað hvenær fer fram, á eftir að samþykkja tillögur Alþingis. Þannig liggur ekki fyrir hvenær ný stjórn tekur við hjá RÚV ohf. Handhafi eina hlutabréfsins í fyrirtækinu er Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra. Láru Hönnu hefur borist bréf frá lögmanni menntamálaráðuneytisins þar sem hann greinir henni frá því að honum hafi verið falið að kanna hæfi hennar til stjórnarsetu. Þetta er gert með vísan til laga þar sem segir að stjórnarmenn megi ekki, hvorki beint né óbeint, taka við greiðslu eða hafa nokkurra hagsmuna að gæta í öðrum fjölmiðlafyrirtækjum eða fjölmiðlatengdum fyrirtækjum sem leitt geta til árekstra við hagsmuni Ríkisútvarpsins. Lára Hanna starfar sem sjálfstæður þýðandi og þýðir þætti fyrir Stöð 2 í verktöku.Að allir geri grein fyrir hæfi sínu Eftir því sem næst verður komist er Láru Hönnu einni gert að sanna hæfi sitt af þeim stjórnarmönnum sem kosnir voru. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og fyrrverandi menntamálaráðherra, segir það orka tvímælis. "Það er auðvitað spurning. Ljóst er að lagabókstafurinn gerir ráð fyrir því að þarna geti ekki setið fólk með tengsl við önnur fjölmiðlafyrirtæki. En, það er líka ljóst að þau tengsl geta verið mjög margháttuð, sérstaklega í nútímanum þar sem þessi heimur er orðinn miklu flóknari en var. Þó við höfum reynt að skilgreina hugtakið fjölmiðill í nýjum fjölmiðlalögum liggur fyrir að það er miklu stærri heimur en bara tvö til þrjú fjölmiðlafyrirtæki. Þannig að það er spurning hvort allir gerðu grein fyrir sínum tengslum," segir Katrín.Lára Hanna sjálf skilgreint sig sem starfsmann 365 Spurð hvernig á því standi að Láru Hönnu einni sé gert að gera grein fyrir hæfi sínu vísar Sigríður Hallgrímsdóttir aðstoðarmaður menntamálaráðherra til 2. mgr. 9. gr. laga en samkvæmt henni er tilnefning stjórnarmanna Ríkisútvarpsins í höndum Alþingis og verður því að ætla að ákveðin rannsóknarskylda hvíli á Alþingi að gæta þess að tilnefndir aðilar uppfylli framangreind hæfisskilyrði. "Í kjölfar kjörs fyrir tilnefningu Alþingis í stjórn Ríkisútvarpsins 5. júlí 2013 bárust ráðuneytinu ábendingar um að einn tilnefndur varamaður uppfyllti hugsanlega ekki hina neikvæðu hæfisreglu 5. mgr. 9. gr. laganna. Til þess var meðal annars vísað að fram hefði komið í bloggfærslu hjá Láru Hönnu Einarsdóttur frá 19. maí 2013 að fjölmiðlafyrirtækið 365 - miðlar væri „vinnuveitandi" hennar. Í framhaldi af því hafði ráðuneytið samband við Láru Hönnu og vakti athygli hennar á hinu sérstaka neikvæða hæfisskilyrði 5. mgr. 9. gr. laganna. Ráðuneytið hefur ekki sent bréf þess efnis til Láru Hönnu Einarsdóttur um að hún sannaði hæfi sitt. Ráðuneytið hafði samband við hana eins og ofan greinir og í kjölfarið ræddi hún við starfsmann ráðuneytisins í síma," segir Sigríður í svari við fyrirspurn.Verðandi stjórnarmenn RÚV ofh Fyrrverandi menntamálaráðherra telur ýmislegt annað en óbein tengsl við fjölmiðlafyrirtæki gæti kallað fram spurningar um vanhæfi; að staða stjórnarmanna á öðrum vettvangi gæti stangast á við hagsmuni RÚV og mætti velta fyrir sér stöðu tilnefndra í því sambandi. DV beinir til dæmis sjónum að Jóni Hákoni Magnússyni, eiganda almannatengslafyrirtækisins KOM, í því samhengi í dag. Á heimasíðu KOM segir: "Jón Hákon ritstýrir ensku fréttariti KOM, sem sent er um allan heim tvisvar í viku. Það heitir Iceland News Briefs (iNB) og hefur verið gefið út frá því í september 2004." En þeir sem kosnir voru af þingi sem stjórnarmenn eru samkvæmt upplýsingum frá Alþingi: Guðrún Nordal (A), Margrét Frímannsdóttir (B), Magnús Stefánsson (A), Björg Eva Erlendsdóttir (B), Magnús Geir Þórðarson (A), Úlfhildur Rögnvaldsdóttir (A), Sigurður Björn Blöndal (B), Ingvi Hrafn Óskarsson (A), Pétur Gunnarsson (B). Varamenn: Jón Hákon Magnússon (A), Árni Gunnarsson (B), Gabríela Friðriksdóttir (A), Hlynur Hallsson (B), Jóhanna Pálsdóttir (A), Katrín Sigurjónsdóttir (A), Lilja Nótt Þórarinsdóttir (B), Árni Gunnarsson (A), Lára Hanna Einarsdóttir (B).
Mest lesið Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Innlent Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Fleiri fréttir Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Sjá meira
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent
Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Innlent