Rollu rænt og hestur sprakk Jakob Bjarnar skrifar 6. nóvember 2013 11:22 Allt lék á reiðiskjálfi í Stykkishólmi um síðustu helgi.
Lögreglubíll stórskemmdist um síðustu helgi í Stykkishólmi þegar honum var ekið á hest. Hrossið sprakk, að sögn yfirlögregluþjónsins. Svo virðist sem allt hafi leikið á reiðiskjálfi í Stykkishólmi um síðustu helgi; einhvers konar sturlun virðist hafa gripið um sig í þessum fallega og friðsæla bæ. Svo mikið gekk á að lögreglubíll embættisins á Snæfellsnesi stórskemmdist þegar honum var ekið á hross og er talinn gjörónýtur. Ekki urðu slys á mönnum en hrossið sprakk, að sögn Ólafs Guðmundssonar yfirlögregluþjóns -- innyflin fóru í klessu og þurfti að aflífa það. Hrossið hljóp fyrir bílinn skammt frá afleggjaranum inn að Kvíabryggju. Slagsmál höfðu brotist út á Hótel Stykkishólmi og þurfti að kalla á aðstoð frá Ólafsvík, en aðeins einn lögregluþjónn var til staðar í Stykkishólmi og treysti hann sér ekki til að fara einn í að skakka leikinn. Þá höfðu ónefndir menn tekið sig til, stolið kind í nágrenni bæjarins og voru blindfullir að flækjast með hana í bænum. Voru þeir handteknir. Vélsmiðja var með skemmtun á hótelinu og endaði sú skemmtan með því að barþjónn var fluttur á spítala. Aðspurður segir Ólafur Guðmundsson yfirlögregluþjónn það passa: óspektarmennirnir voru aðkomumenn, enda gerist sjaldan nokkuð í Stykkishólmi í þessa átt sem í frásögur er færandi.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira