Hrotti ákærður á ný fyrir hótanir og ofbeldi Stígur Helgason skrifar 7. júní 2013 07:00 Öll brotin sem Lárusi eru gefin að sök munu hafa verið framin í Borgarnesi. Fréttablaðið/Pjetur
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Lárusi Má Hermannssyni, 43 ára, fyrir alvarlegar hótanir og ofbeldi. Hæstiréttur dæmdi Lárus í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir hrottafengna árás á barnsmóður sína árið 2006. Í þetta skipti eru Lárusi gefin að sök brot sem samkvæmt ákæru voru öll framin í Borgarnesi í fyrra. Í fyrsta lagi er hann ákærður fyrir hótun með því að hafa tekið á móti þremur mönnum á heimili sínu í ágúst og beint að þeim óhlöðnum riffli. Þá er hann ákærður fyrir vopnalagabrot með því að eiga riffilinn. Það mál tengdist deilum hans við fyrrverandi unnustu og nýjan kærasta hennar. Lárus er einnig ákærður fyrir að senda unnustunni fyrrverandi ítrekað hótanir í sms-skilaboðum um að hann mundi vinna hinum nýja kærasta mein. Að síðustu er hann ákærður fyrir að kýla lögreglumann í andlitið á lögreglustöðinni í Borgarnesi og hóta öðrum lífláti.Lúbarði barnsmóðurina með felgulykli Í ágúst 2005 barði Lárus barnsmóður sína og fyrrverandi sambýliskonu ítrekað með felgulykli í höfuðið vegna afbrýðisemi. Konan slapp án alvarlegra áverka en í dómnum segir að það hafi verið mesta mildi að ekki hlaust alvarlegri skaði af áverkunum. Héraðsdómur Vesturlands dæmdi Lárus í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps en Hæstiréttur mildaði dóminn í tvö og hálft ár, þar sem ekki væri sannað að Lárus hefði haft ásetning til að bana konunni.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira