Náttúruperlur undir gríðarlegu álagi 7. júní 2013 07:00 Erlendir ferðamenn hafa fjölmennt í þjóðgarðinn á Þingvöllum undanfarna daga. mynd/Einar Sæmundssen „
Það er mikilvægt að byrja strax að taka ákvarðanir um hvaða svæði þarf að einblína á. Hvar við viljum byggja upp innviði, eða halda þeim við, og hvar við viljum hreinlega takmarka umferð ferðamanna í einhvern tíma,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar. Sífellt fleiri láta síaukna umferð ferðamanna um helstu náttúruperlur þjóðarinnar sig varða. Ekki alls fyrir löngu hélt Landsvernd tvö málþing, eitt í Mývatnssveit og annað í Reykjavík, um ferðamennsku á jarðhitasvæðum en umræðurnar leiddust út í ferðamennsku almennt. Fregnir af bágu ástandi svæða eins og við Goðafoss, Þingvelli, Dimmuborgir, Seljalandsfoss og fleiri þekktar náttúruperlur hafa orðið til þess að þessi málaflokkur hefur fengið aukna athygli. Enda engin vanþörf þar á. Hjalti J. Guðmundsson, teymisstjóri náttúrusvæða hjá Umhverfisstofnun, bendir á að heilmiklar framkvæmdir séu í gangi víðs vegar um landið til að sporna við þessari þróun. „Við erum að gera heilmikið. 2013 er í raun og veru stærsta framkvæmdaár okkar á friðlýstum svæðum í mjög langan tíma, ef ekki frá upphafi. Það er mikilvægt að þessi svæði missi ekki verndargildi sitt.“ Hjalti telur að um 150 milljónum sé varið í uppbyggingu svæða sem hafa illa orðið úti, meðal annars vegna mikillar umferðar ferðamanna. En vinnan er ekki öll unnin. „Það er ljóst að það þarf að verja miklu meiri fjármunum í byggingu á innviðum, aðstöðu eins og útsýnispöllum, göngustígum, salernisaðstöðum og þar fram eftir götunum. Þannig getum við stjórnað umferð ferðamanna um svæðin. Svo bætir það gráu ofan á svart að túrisminn stendur lengur yfir núna en hann hefur áður gert. Til að mynda á vorin og haustin, þegar landið og gróðurinn eru hvað viðkvæmust,“ sagði Hjalti jafnframt. Einar Sæmundsen, fræðslufulltrúi Þingvalla, sagði í samtali við fréttastofu 365 að örtröð hefði þegar myndast á Þingvöllum, þrátt fyrir veðurfar. „Það er hér örtröð af ferðamönnum og við erum að gera okkar besta, en við erum þannig fjársvelt að okkur vantar virkilega stórt framlag til að ná að anna öllu þessu fólki. Ég hef til dæmis ekkert bætt við starfsfólki fyrir sumarið nema í fræðslumiðstöðinni.“
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Fleiri fréttir Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Sjá meira