Lífið

Komin á fast með upptökustjóra

Miley Cyrus er sögð komin í nýtt samband.
Miley Cyrus er sögð komin í nýtt samband. Nordicphotos/getty
Söngkonan Miley Cyrus er komin með nýjan kærasta upp á arminn. Sá heppni kallar sig Mike WiLL Made It og er upptökustjóri. Á undanförnum mánuðum hefur Cyrus birt myndir af sér og Mike á Twitter-síðu sinni en einnig náðust myndir af parinu í faðmlögum eftir tónlistarhátíðina iHeartRadio í Las Vegas á sunnudag. Hvorugt hefur þó staðfest sambandið við fjölmiðla.

Söngkonan var áður trúlofuð ástralska leikaranum Liam Hemsworth, en þau kynntust við tökur á kvikmyndinni The Last Song árið 2010.

Hemsworth virðist einnig vera kominn í nýtt samband því breski fjölmiðillinn Daily Mail birti myndir af honum kyssa mexíkósku leikkonuna Eiza González fyrir helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.