Sá nýjasti sem situr í varðhaldi var handtekinn fyrir tveimur vikum og hefur setið inni síðan. Hann er 22 ára Hafnfirðingur sem hefur áður komist í kast við lögin.
Sex aðrir hafa sætt varðhaldi vegna málanna undanfarnar vikur. Fyrst voru tveir úrskurðaðir í varðhald 10. júlí, annars vegar 21 árs margdæmdur ofbeldismaður og hins vegar 37 ára íbúi á Stokkseyri sem hýsti fórnarlamb einnar árásarinnar um skeið. Þeir eru báðir enn í haldi.
Að kvöldi 11. júlí voru svo tveir menn stöðvaðir í bíl við Laugarvatn, handteknir og úrskurðaðir í varðhald daginn eftir. Þeir eru 21 og 22 ára og eru báðir með dóma á bakinu. Sá eldri hefur síðan verið látinn laus.

Sama dag var annar maður úrskurðaður í einnar viku gæsluvarðhald en honum var sleppt úr haldi örfáum dögum síðar.
Fram hefur komið að hópurinn sé grunaður um fimm árásir, þótt mennirnir tengist hver mismörgum málum.
Sú sem barst til Stokkseyrar er langgrófust, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Árásarmennirnir eru meðal annars taldir hafa reynt að sauma sjálfir saman stóra skurði á fórnarlambinu, ungum manni, eftir að hafa sprautað það með deyfilyfjum. Þá mun eldfimum vökva hafa verið skvett á manninn og eldur borinn að.

Jón útilokar ekki að fleiri verði handteknir vegna málsins.