Fólk veikt vegna myglusvepps á LSH Óli Kristján Ármannsson skrifar 10. janúar 2013 06:00 Myglusveppurinn kom upp í elstu byggingu LSH við Hringbraut – þar er gjörgæsludeild til húsa. fréttablaðið/vilhelm
Mögulega þarf að seinka ákveðnum breytingum sem fyrirhugaðar voru á húsnæði Landspítalans til að bregðast við myglusveppi sem upp er kominn við leka glugga í elsta hluta spítalans. Myglusveppurinn greindist í desember síðastliðnum eftir að hópur starfsmanna á þriðju hæð í eldri byggingu spítalans kvartaði undan ofnæmiseinkennum í öndunarvegi. Sex starfsmenn Landspítalans hafa fundið fyrir óþægindum vegna myglusveppsins sem greinst hefur á einni hæð í eldri byggingu spítalans. Skipt verður um þá glugga sem hafa lekið í sumar og starfsmenn fluttir annað á meðan. „Við rekum hér sjúkrahúsþjónustu í húsi sem byggt er upp úr 1920 og hannað eitthvað fyrr og margbúið að laga,“ bendir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, á. „Við verðum bara að halda lagfæringum áfram þangað til við fáum betri aðstöðu.“ Björn segir vitað um þessi svæði og fleiri þar sem hætt sé við viðlíka vandamálum. „Því þetta er töluverður fjöldi af byggingum sem við erum með og tiltölulega lítið fé sett í viðhald.“ Aukinn kostnaður vegna viðhalds hefur hins vegar ekki áhrif á áætlun spítalans um tækjakaup. „Þau eru á sérlið á fjárlögum undir því sem kallast meiriháttar fjárfestingar. Við verðum bara að seinka ákveðnum breytingum á húsnæði og reyna að finna fé til að laga þetta. Og það verður bara svona plástur, eins og venjulega,“ segir Björn. Ingólfur Þórisson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs LSH, segir að klæðningin í húsinu sé úr lífrænum efnum svo sem korki og timbri sem byrji að fúna ef raki kemst í hana. Myglusveppurinn hefur greinst í um sjö herbergjum þar sem læknar hafa skrifstofu og hvíldaraðstöðu en um sex starfsmenn höfðu kvartað undan óþægindum. Þeir verða fluttir annað þangað til búið er að hreinsa upp sveppinn. Gjörgæsludeild spítalans er á hæðinni fyrir neðan staðinn sem myglusveppurinn greindist. Ingólfur segir að húsnæðið henti ekki viðkvæmri starfsemi „en sem betur fer hefur þetta ekki greinst nema á þessari skrifstofuhæð.“
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira