Myndefnið óljóst og krafðist ítarlegrar skoðunar Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. janúar 2013 12:26 Karl Vignir Þorsteinsson eftir að hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Mynd/ HJH
Myndefni, sem lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir jól, þar sem Karl Vignir Þorsteinsson viðurkennir kynferðisbrot voru óljós og kröfðust ítarlegrar skoðunar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögreglan sendi frá sér í hádeginu. Með yfirlýsingunni bregst lögreglan við gagnrýni sem kom fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær. Í yfirlýsingunni kemur fram að lögreglan sótti gögnin til RÚV fimmtudaginn 20. desember. Efnið hafi verið óklippt og tekið nokkurn tíma að yfirfara það allt, en það var að mestu gert á milli jóla og nýárs. „Gögnin, en ætla má að upptökurnar hafi verið nokkurra vikna gamlar þegar þær bárust lögreglu, voru um margt óljós um hvað var verið að játa, á hvaða tíma brot voru framin og gegn hverjum sem og að hve miklu leyti um var að ræða brot sem maðurinn hafði þegar verið sakfelldur fyrir. Lögreglan þurfti því að fara vandlega yfir málið, m.a. með tilliti til þess hvort brot voru fyrnd og undirbúa sínar aðgerðir. Þeirri vinnu var ekki lokið þegar umfjöllun um málið hófst á opinberum vettvangi," segir í yfirlýsingunni. Eftir sýningu áðurnefnds sjónvarpsþáttar hafi lögreglu hins vegar borist nýjar upplýsingar sem kölluðu á skjót viðbrögð lögreglu. Um hafi verið að ræða kærur vegna brota sem séu hugsanlega ófyrnd. Á grundvelli þessara nýju upplýsinga og kæra var Karl Vignir úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í gær.Viðbót klukkan 13:55 Kastljós sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem brugðist er við yfirlýsingu lögreglunnar. Hún er svohljóðandi:Vegna fréttatilkynningar lögreglu frá því í morgun vill ritstjórn Kastljóss taka fram að umsjónarmenn þáttarins tilkynntu yfirmanni kynferðisbrotadeildar um upptökur Kastljóss og efni þeirra 14. desember sl. Strax þá var lögreglu gerð grein fyrir því að þar væri að finna játningar Karls Vignis á nýlegum kynferðisbrotum auk játninga hans á eldri brotum gegn á þriðja tug barna á 50 ára tímabili. Meðal annars gegn nafngreindum einstaklingum. Þá þegar bauðst lögreglu að skoða efnið. Efnið sem Kastljós afhenti lögreglu var tekið upp í tvennu lagi: Annars vegar 29. nóvember, þar sem Karl Vignir ræðir eingöngu um eldri brot sín. Hins vegar 12. desember, þar sem Karl er spurður mun ítarlegar út í brotaferil sinn auk þess sem hann gengst við því að hafa brotið af sér eftir árið 2007. Í seinni upptökunni fékkst því mun gleggri mynd af brotum sem hann hafði ekki áður játað. Strax og umsjónarmenn Kastljóss höfðu farið yfir efnið var lögreglu því gert viðvart. Skilja má á yfirlýsingu lögreglu að óljóst sé hvenær upptökurnar voru gerðar. Vegna þessa er rétt að taka fram að á upptökunum er nákvæmur kóði sem sýnir dagsetningu og tíma. Lögreglunni var auk þess tilkynnt um það nú stuttu eftir áramót, að Kastljós hygðist senda umræddan þátt út nú í byrjun vikunnar. Kastljós vill einnig taka fram að eftir sýningu þáttarins á mánudag hefur Kastljós fengið nokkrar ábendingar um nýrri brot Karls Vignis. Kastljós hefur bent þeim einstaklingum á að hafa samband við lögreglu. Í sumum tilfellum treystu fórnarlömbin sér ekki til þess og óskuðu eftir trúnaði, sem Kastljós virðir að sjálfsögðu. Sigmar Guðmundsson Helgi Seljan Jóhannes Kr. Kristjánsson
Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Erlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Fleiri fréttir „Mjög margar perlur á Íslandi sem verða alltaf varasamar“ Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Sjá meira