Hafnar ásökunum fórnarlamba 10. janúar 2013 07:00 Karl Vignir hefur játað að hafa misnotað fjölda barna á vistheimilinu Kumbaravogi á meðan hann dvaldi þar sem starfsmaður.
Róbert R. Spanó, fyrrum formaður vistheimilanefndar forsætisráðuneytisins, hafnar ásökunum Ernu Agnarsdóttur og Maríu Haraldsdóttur um að orð þeirra um að Karl Vignir Þorsteinsson hafi beitt þær og fleiri börn á vistheimilinu Kumbaravogi kynferðisofbeldi hafi ekki verið tekin trúanleg. Í niðurstöðum skýrslu nefndarinnar segir meðal annars að það séu „meiri líkur en minni“ að börnin á heimilinu hafi verið beitt ofbeldi. Karl Vignir hafði þá játað brot sín og lá það fyrir. „Það kemur afdráttarlaust fram niðurstaða um að þessar frásagnir hafi verið trúverðugar og í samræmi við önnur gögn málsins,“ segir Róbert. „Þá er ályktað með skýrum hætti með þeim mælikvarða sem nefndin notaði í öllum sínum störfum, þar sem hún mátti ekki fjalla um sekt eða sýknu einstakra manna, að hluti vistmanna hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi þessa manns.“ Hann bætir við að nefndin hafði ekki lögregluvald og gat ekki samkvæmt lögum skyldað neina aðra en fyrrum starfsmenn vistheimilanna á sinn fund. „Hvað sem því líður höfðum við meðal annars upplýsingar um játningar þessa manns fyrir lögreglu á árinu 2007 sem við vísum beint til í niðurstöðunni,“ segir Róbert. „Við höfðum því allt sem við þurftum til að fjalla um þessar frásagnir sem voru að okkar mati sannleikanum samkvæmar.“ Fram kom í Kastljósi á þriðjudagskvöld að þær María og Erna hefðu leitað ýmissa leiða til að fá nefndina til að endurskoða orðalagið í skýrslunni. Það var ekki fyrr en þær leituðu til allsherjarnefndar Alþingis sem viðbrögð komu við athugasemdum þeirra. - sv
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira