Fimm hælisleitendamál kærð á mánuði 28. mars 2013 00:01 Myndin tengist fréttinni ekki.
Fjörutíu og eitt mál er varðar hælisleitendur sem hafa reynt að laumast um borð í skip sem sigla héðan til Ameríku hefur verið kært til lögreglu síðustu átta mánuði. Þetta gerir að meðaltali rúmlega fimm mál á mánuði. Sum brotanna varða kærur á hendur sömu einstaklingunum sem hafa gert ítrekaðar tilraunir til að gerast laumufarþegar. Þetta kemur fram í svari Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur þingkonu um málefni hælisleitenda. Spurning Vigdísar var í átta liðum en hún vildi meðal annars fá að vita hvort einhver eftirmál hefðu orðið í „alþjóðaflugsamfélaginu varðandi Keflavíkurflugvöll þegar tveir hælisleitendur komust óséðir um borð í flugvél fram hjá öllum öryggisþáttum". Í svari Ögmundar segir að engin eftirmál hafi orðið önnur en þau að ein fyrirspurn hafi borist frá fulltrúa flugmálayfirvalda í Bandaríkjunum vegna málsins. Síðasti liður spurningar Vigdísar veltir því upp hvort ráðherra hafi skoðað þann möguleika að hælisleitendur sem framið hafa húsbrot hjá skipafélögunum beri ökklabönd sem sýni staðsetningu þeirra. Ögmundur bendir á að ekki sé leyfilegt að nota rafrænt eftirlit nema gæsluvarðhald sé fyrir hendi eða viðkomandi að ljúka fangelsisvist. Þá bendir hann á að ráðherra taki ekki ákvörðun um rafrænt eftirlit heldur aðeins dómstólar eða Fangelsismálastofnun.
Mest lesið Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Innlent Deilur Repúblikana um Epstein-skjölin magnast enn Erlent Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Innlent Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Innlent Skotárás í Bangkok: Skaut fimm til bana og fyrirfór sér Erlent Rok og rigning sama hvert er litið Veður Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Innlent 64 prósent myndu þiggja gjaldfrjáls þyngdarstjórnunarlyf Erlent Semja um vopnahlé Erlent Segir nýjan viðskiptasamning þann „stærsta í sögunni“ Erlent Fleiri fréttir Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Vara fólk við því að ganga á nýrunnu hrauninu Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Fulltrúar minnihlutans á einu um að tollarnir hafi ekki verið ræddir Gervigreind leggur Íslendingum orð í munn, bátabruni og veðrið um versló Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Segir áhyggjuefni að ESB hafi platað Íslendinga í tíu ár „Ökum slóðann” – Átaksverkefni gegn utanvegaakstri Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Bátar brenna í Bolungarvík Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna fara rangt með mál „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Sjá meira