Ólafur Darri með flest áheit: „Ég er fullur þakklætis“ Haraldur Guðmundsson skrifar 19. ágúst 2013 17:00 Ólafur Darri ætlar að hlaupa til styrktar vinkonu sinni Sunnu Valdísi.
Ólafur Darri Ólafsson leikari hefur nú safnað flestum áheitum í áheitasöfnun Hlaupastyrks sem haldin er í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Ólafur hefur þegar þetta er skrifað safnað 815.757 krónum sem renna til AHC-samtakanna á Íslandi. Ólafur ætlar að hlaupa tíu kílómetra til styrktar Sunnu Valdísi Sigurðardóttur sem er eini AHC-sjúklingurinn sem greindur hefur verið á Íslandi. „Mér finnst þetta yndislegt og ég er fullur þakklætis. Það er ótrúlega gaman að sjá að ég er farinn að nálgast markmiðið um að ná að safna einni milljón króna. Hins vegar skiptir ekki öllu að vera í fyrsta sæti enda er hægt að styrkja mörg góð málefni. Ég sé bara eftir því að hafa ekki haft markmiðið hærra,“ sagði Ólafur og hló þegar blaðamaður Vísis sló á þráðinn til hans nú seinnipartinn. Eins og kom fram hér á Vísi fyrr í dag þá neitaði Ólafur Darri að taka við gjöfum í fertugsafmælisveislu sinni um helgina en bað afmælisgesti þess í stað að heita á sig. Að auki var greiðsluposi í veislunni þar sem gestir gátu styrkt AHC samtökin beint. „Þar söfnuðust um 70.000 krónur til viðbótar og ég veit einnig að einhverjir lögðu inn á reikning samtakanna,“ sagði Ólafur. „Nú eru enn fimm dagar til stefnu og ég vona að það gangi sem allra best hjá öllum sem eru að safna áheitum og ég hvet fólk sem er aflögufært eindregið til að fara inn á www.hlaupastyrkur.is og styrkja góð málefni.“
Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira