Sigmundur Davíð ætlar að heyra í forsetanum í næstu viku Karen Kjartansdóttir skrifar 3. maí 2013 19:08
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins, reiknar með að vera í ágætu sambandi við forseta Íslands áður en hann ákveður með hverjum hann gengur til formlegra stjórnarmyndunarviðræðna. Hann ætlar að flýta sér hægt og gerir ekki ráð fyrir að heyra í forsetanum um málið fyrr en í seinni hluta næstu viku. Það bíða allir spenntir eftir ákvörðun Sigmundar Davíðs þessa dagana. Sigmundur virðist hins vegar ekkert vera drífa sig. Þannig var enginn formlegur fundur haldin í dag milli hans og annarra formanna og enn hafa viðræður um ríkisstjórnarsamstarf ekki hafist. „Við höfum lagt á það áherslu að menn í næstu ríkisstjórn verði að taka á þessum skuldavanda heimilanna og nýta það tækifæri sem menn standa frammi fyrir núna. Það má ekki kasta því tækifæri á glæ." Sigmundur segir aðgerðirnar eiga að vera almennra og því væntanlega líka taka til þeirra sem ekki eru í greiðsluvanda. Þetta snúist um að bæta fólki það tjón sem það varð fyrir vegna framferðis fjármálafyrirtækja sem fóru í þrot og verið er að gera upp. Í raun megi segja að þetta sé seinni hlutinn af neyðarlögunum. „Samlíkingin við neyðarlögin er mjög góð því þau voru í raun bara fyrr hlutinn af þessu þá var ekkert spurt um þá sem áttu ekkert eða jafnvel minna en ekki neitt heldur skulduðu. Eignir voru varðar og notað til þess fjármagn úr þrotabúunum og það er eðlilegt að fylgja því eftir með því að koma til móts við þá sem skulda þegar klárað er að gera upp þessi þrotabú." En hvað þurfa hinir formennirnir að sættast á? „Við höfum leitast við að sýna fram á að það sé hægt að ná markmiðinu og fjármagna það en verið hins vegar opin fyrir því að vinna útfærsluna með öðrum. Það gerum við svona í ljósi reynslunnar því þegar 20% leiðin var rædd á sínum tíma fór öll að snúast um smáatriði í útfærslunni og aðrir gátu ekki sæst á hana því hún kom frá okkur. Þess vegna segjum við núna, við skulum bara sameinast um bestu útfærsluna." Og miðað við forsíðufrétt Financial Times í gær virðast kröfuhafar vera meðvitaðir um að minni heimtur verði í ljósi niðurstöðu kosninganna. Einnig er vitnað til Más Guðmundssonar seðlabankastjóra um að þessi afsláttur gæti orðið allt að 75% af krónueignum þessara kröfuhafa hér á landi. „Svoleiðis að þetta er fyrst og fremst staðfesting á því sem við höfum verið að benda á. Mikilvægi þess fyrir þá ekki síður að semja og ná ástættanlegri niðurstöðu. Það er í raun öllum í hag að komast að niðustöðu í þessu. Þá getur Ísland náð sér á strik aftur og þeir losna við sitt. En hvernig verður komið í veg fyrir að þetta verði álitin eignaupptaka." Vilji annarra formanna til að vinna að markmiðinu um að bæta skuldavanda Íslenskra heimilanna og skoða útfærslur á því sé það sem helst þurfi til að viðræður um stjórnarmyndun geti farið af stað. En þegar þú ert tilbúinn til viðræðna, muntu þá tilkynna forseta Íslands það fyrst? „Ég geri ráð fyrir að við verðum í ágætis sambandi með þetta, hann tók það sérstaklega fram að þessu væri ekki sett nein tímamörk og gerði ráð fyrir að við myndum heyrast í seinni hluta næstu viku, svo hann gerir sér grein fyrir því að þetta geti allt tekið tíma.“
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Sjá meira