Innlent

Á vetrarflötum þar til degi fer að halla

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Þrátt fyrir miklar aðgerðir í vetur kom kal í flatirnar á golfvellinum Jaðri á Akureyri.
Þrátt fyrir miklar aðgerðir í vetur kom kal í flatirnar á golfvellinum Jaðri á Akureyri. Fréttablaðið/Pjetur

„Völlurinn kom betur undan vetri en við þorðum að vona. Við lögðum gríðarlega vinnu í það að brjóta ís í vetur, en það hefur verið mikið kal á Norðurlandi öllu þennan langa vetur. Völlurinn okkar er engin undantekning þar á, og þótt við höfum hamast í allan vetur við það að brjóta ís á stórum vinnuvélum, fengum við samt kal í margar flatir hjá okkur,“ segir Sigmundur Ófeigsson, formaður Golfklúbbs Akureyrar.

Sigmundur reiknar ekki með að hleypa inn á aðalflatirnar fyrr en á bilinu 22. - 27. júní. „Við sáðum nýju fræi í aðalflatirnar fyrir um tveimur vikum. Til þess að hafa flatirnar góðar í allt sumar þá viljum við leyfa þeim að spretta þokkalega,“ hélt Sigmundur áfram.

„Okkur finnst þetta grátlegt“

Meðlimir Golfklúbbs Akureyrar eru spenntir að komast inn á aðalflatirnar og hafa sýnt mikla þolinmæði að sögn Sigmundar. 



„Okkar félagar eru náttúrulega orðnir óþreyjufullir að komast á völlinn og spila í þessu góða veðri sem hefur verið hérna fyrir norðan. Okkur finnst þetta grátlegt,“ bætti Sigmundur við.

Til samanburðar má benda á að byrjað var að hleypa inn á aðalflatirnar á Jaðri þann 20. apríl í fyrra.

„Auðvitað er það skrýtið að spila á vetrarflötum þar til degi fer að halla. Þetta er ekki sama íþrótt,“ segir Sigmundur jafnframt.

Vetrarflatir kallast það þegar holur eru settar út á brautina sjálfa, til þess að hlífa flötunum sem fyrir eru.

„Þetta eru náttúrlega ekki alvöru flatir. En þetta er svosem víða gert. Skotar gera mikið af þessu þegar þeir þurfa að hlífa sínu flötum,“ útskýrði Sigmundur.

Talsverð tekjuskerðing

Þessi staða sem upp er komin hefur talsverð áhrif á afkomu félagsins og vallarins. 

„Tekjuskerðing af þessu fyrir okkur hleypur á milljónum,“ segir Sigmundur. „Núna er völlurinn aðallega opinn fyrir klúbbsmeðlimi náttúrulega og við leyfum útlendingum að spila líka. Þeir eru oft að koma hingað til þess að spila á einum nyrðsta átján holu velli veraldar,“ bætti Sigmundur við. 

„En þeir kannski kvarta minnst, því þeir virðast gera þetta fyrir upplifunina en ekki gæðin,“ segir Sigmundur.

En þrátt fyrir snjóþungann og óvenjulangan vetur sem náði frá októberlokum fram í apríl segir Sigmundur völlinn hafa komið ágætlega út. 

„Brautir eru ágætar, flestir teigar í lagi, en þetta var gríðarlega vinna í vetur sem við lögðum í þetta,“ segir Sigmundur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×