Áætlunarbílstjóra reistur minnisvarði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 1. júlí 2013 11:45 Óskar Sigurjónsson við einn bíla sinna, áætlunarbílstjóri frá því fyrir miðja tuttugustu öldina. Mynd/Úr einkasafni „
Það er verið að heiðra störf föður míns og ástríðu hans fyrir Þórsmörkinni,“ segir Óskar Óskarsson, sonur Óskars Sigurjónssonar rútubílstjóra með meiru sem reisa á minnismerki í Þórsmörk. Óskar Sigurjónsson hóf akstur áætlunarbíla fyrir miðja síðustu öld. Hann var einn stofnenda Austurleiðar og rak fyrirtækið um margra áratuga skeið. Meðal margra viðfangsnefna Óskars var mikil uppbygging á ferðaþjónustu í Húsadal í Þórsmörk. Óskar lést í október í fyrra, 87 ára að aldri. Óskar yngri segir að í erfidrykkjunni hafi fyrrverandi starfsfólk föður hans nefnt þann möguleika að minnast brautryðjendastarfa hans með minnisvarða og áletruðum skildi í Húsadal. „Þeim fannst viðeigandi að minnismerkið yrði á þessum stað því þótt hann væri með mörg járn í eldinum var Þórsmörkin honum ofarlega í huga og átti sérstakan stað í hjarta hans – kannski frá því hann horfði þarna inn eftir sem lítill drengur,“ segir Óskar yngri. „Þessi virðingarvottur er vegna endalauss trausts og ómældrar virðingar sem Óskar naut alla tíð hjá sínu starfsfólki,“ segir Jón Hermannsson, starfsmaður Austurleiðar frá 1976 til 1986. Setja á minnisvarðann saman úr fjórum til fimm stórum grágrýtissteinum af svæðinu og koma honum fyrir við brekkurætur á Stóruflöt, um tuttugu metra frá göngustígnum um Húsadal. Var frumkvöðullÍ Húsadal Óskar Sigurjónsson vann mikið starf sem brautryðjandi í áætlunarferðum, ferðaþjónustu og uppbyggingu í Húsadal í Þórsmörk. Mynd/Kynnisferðir„Sú hugmynd hefur verið nefnd að hafa eina rútuferð á afmælisdeginum hans, 16. ágúst, og afhjúpa þá minnisvarðann ef allt gengur upp. Þá verður jafnframt tækifæri fyrir gamla starfsmenn að hittast og gera sér glaðan dag. Ég reikna með að við systkinin verðum með í því,“ segir Óskar. Að sögn Óskars yngri var faðir hans að mörgu leyti frumkvöðull í þeirri tegund ferðaþjónustu sem hann barðist fyrir í Húsadal; að vera með einn miðlægan skála og leyfa fólki síðan að velja hvort það dveldi í smáhýsum eða tjöldum. „Hann hafði mikið dálæti á Þórsmörkinni og fannst gaman að skapa þar aðstöðu svo fleiri gætu komið og notið þess sem umhverfið og jökullinn hafa upp á bjóða. Eftir að hann hætti að keyra rútur um sjötugt hélt hann áfram að vinna mikið inni í Þórsmörk á meðan hann stóð í lappirnar,“ segir Óskar Óskarsson.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira