"Ókostir beins lýðræðis eru verulegir" Jóhannes Stefánsson skrifar 1. júlí 2013 14:05 Gunnar Helgi segir forsetann eiga heiðurinn, eða sökina, að því að nú sé landinn farinn að safna undirskriftum um hin ýmsu mál.
Landinn hefur í auknum mæli brugðið á það ráð að safna undirskriftum til að þrýsta á hin ýmsu málefni, en undirskriftasafnanir um að klára viðræður við ESB, kjör öryrkja, úthlutunarreglur LÍN, veiðileyfagjöld og betra veður eru komnar í loftið svo dæmi séu tekin. Fréttastofa hafði samband við Gunnar Helga Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hann segir Forseta Íslands eiga heiðurinn að þessari miklu aukningu á tilhneigingu þjóðarinnar til að safna undirskriftum til stuðnings málstað sínum. Undirskriftunum er því jafnan safnað í þeirri von að málið rati fyrir augu forseta sem vísi málinu þá í þjóðaratkvæðagreiðslu.Heiðurinn, eða sökin, forsetans „Forsetinn kom þessum bolta af stað með því að vísa til undirskriftasafnana í synjunum sínum á lögum. Fólk hefur bara tekið við þeim bolta og reynir að gera sér eins mikinn mat úr því og það getur," segir Gunnar og bætir við: „Ég held að það sé nú ekki flóknari skýring en það." Gunnar segir um séríslenskt fyrirbæri að ræða. „Ég efast um að þetta sé alþjóðleg tilhneiging. Líklega er um séríslenskt fyrirbæri að ræða. Það er reyndar þannig að það er víða verið að leita fjölþáttari þáttökutækifæra almennings og undirskriftir falla í þann flokk. Að því leytinu er þetta hluti af alþjóðlegri þróun. Þetta form, undirskriftir, er þó algjörlega vegna forsetans. Hann á heiðurinn á þessu, eða sökina, eftir því hvernig þú lítur á það."Ókostir beins lýðræðis mjög miklir Eins og kunnugt er sagði Sigmundur Davíð á Alþingi fyrir skemmstu að stór galli þjóðaratkvæðagreiðslna væri sá að með þeim væri hætta á að meirihlutinn misnotaði minnihlutann. Undir þetta tekur Gunnar. „Það er ákveðið lýðræðislegt vandamál við það að leysa alla hluti í þjóðaratkvæðagreiðslum. Dæmið sem ég tek oft er frá Belgíu. Flæmskumælandi Belgar eru 60% þjóðarinnar og önnur þjóðarbrot eru minni. Ef að öll mál væru leyst í þjóðaratkvæðagreiðslu þá hefði minnihlutinn ekki 40% áhrif heldur hefði hann 0% áhrif. Hættan er sú við þjóðaratkvæðagreiðslur, að ef að það eru einhverjir viðvarandi meirihlutar þá geta þeir beitt minnihlutann misrétti. Kostur fulltrúalýðræðisins er að þar er einhver vettvangur til að sjatla mál, gera málamiðlanir og svo framvegis," segir hann. Þá segir Gunnar að mörgum yfirsjáist ókostir beins lýðræðis og að umræðan sé einstrengingsleg. „Mér finnst þetta tal um beint lýðræði vera komið langt fram úr einhverju sem að einhver rök standa til. Það er eitt ríki í heiminum sem að notar beint lýðræði í einhverjum verulegum mæli og það er Sviss. Það er eitt sérviskulegasta lýðræðisríki heims en engin önnur lönd hafa talið sér fært eða séð ástæðu til að fara sömu leið og Sviss."Stjórnmálamenn þora ekki að tala um ókosti lýðræðis Hann segir menn fullyrða of mikið um kosti beins lýðræðis og skauti yfir ókostina. „Hér ræða menn um beint lýðræði eins og það sé einhver augljós leið og það blasi bara við að það sé betra lýðræðiskerfi heldur en önnur kerfi. Ég held að það sé miklum vafa undirorpið að svo sé og áður en menn fara að kokgleypa þá beitu að þá væri nú ástæða til að velta fyrir sér hvaða kosti og galla hefur beint lýðræði. Ókostirnir eru verulegir." Aðspurður að því hvort stjórnmálamenn veigri sér að benda á ókosti lýðræðis segir Gunnar: „Já það má vel vera að séu feimnir við að fara út í þann slag. Það er hætt við því að þeir fái yfir sig dálitla dembu eins og þeir séu þá á móti lýðræði og allt það." Því eigi fulltrúalýðræðið sér stundum ekki mjög áberandi málsvara.
Mest lesið Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Sjá meira