Nú í hádeginu var dregið í undanúrslit í Borgunarbikar kvenna. Topplið deildarinnar mætast ekki í undanúrslitunum.
Topplið Stjörnunnar fékk heimaleik gegn Íslandsmeisturum Þór/KA á meðan Breiðablik, sem er í öðru sæti, fékk heimaleik gegn Fylki.
Stjarnan á titil að verja. Leikirnir fara fram föstudaginn 27. júlí.
Bikarmeistararnir mæta Íslandsmeisturunum
