Lögreglan talaði við meintan banamann í gærkvöldi 7. maí 2013 16:19 Fjölbýlishúsið sem um ræðir er við hliðina á húsinu með bláa þakinu.
Karlmaðurinn, sem er grunaður um að hafa myrt karlmann á sjötugsaldrinum, ónáðaði fólk í fjölbýlishúsinu í gærkvöldi með því að banka upp á hjá þeim og biðja um áfengi og tóbak. Samkvæmt Austurfréttum var lögreglan kölluð á vettvang í gærkvöldi vegna ónæðisins. Enn fremur staðfestir Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, að lögreglan hefði talað við manninn um miðnætti. Hinn látni fannst svo í morgun. Íbúi, sem Austurfréttir ræddi við, varð var við lögreglu og sjúkrabíla á níunda tímanum í morgun. Þá þegar var ljóst að andlát mannsins bar ekki að með eðlilegum hætti. Karlmaðurinn, sem er grunaður um að hafa orðið manninum að bana, er í haldi lögreglu og er á þrítugsaldri. Hann hefur ekki búið lengi í fjölbýlishúsinu, sem er við Blómvang á Egilsstöðum. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á vettvangi og svo virðist sem lögreglan sé við rannsóknir í tveimur íbúðum í húsinu.
Tengdar fréttir Karlmaður handtekinn í tengslum við andlát manns Karlmaður hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á andláti manns í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum. Þetta staðfestir Jónas Wilhelmsson, lögregluþjónn á Eskifirði í samtali við Vísi. Það var á áttunda tímanum í morgun sem maðurinn hinn látni fannst og fljótlega vöknuðu grunsemdir um að andlát hans hefði ekki borið að með eðlilegum hætti. Lögreglan á Eskifirði nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn málsins. Ekki hefur verið krafist gæsluvarðhalds yfir manninum sem er í haldi. 7. maí 2013 14:47 Lögreglan við rannsókn í tveimur íbúðum Lögreglan á Eskifirði er nú að störfum í tveimur íbúðum á sitthvorri hæðinni í fjölbýlishúsi við Blómvang á Egilsstöðum, þar sem maður fannst látinn í morgun, en grunur leikur á að andlát hans hafi borið að með voveiflegum hætti. 7. maí 2013 15:50 Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira
Karlmaður handtekinn í tengslum við andlát manns Karlmaður hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á andláti manns í fjölbýlishúsi á Egilsstöðum. Þetta staðfestir Jónas Wilhelmsson, lögregluþjónn á Eskifirði í samtali við Vísi. Það var á áttunda tímanum í morgun sem maðurinn hinn látni fannst og fljótlega vöknuðu grunsemdir um að andlát hans hefði ekki borið að með eðlilegum hætti. Lögreglan á Eskifirði nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn málsins. Ekki hefur verið krafist gæsluvarðhalds yfir manninum sem er í haldi. 7. maí 2013 14:47
Lögreglan við rannsókn í tveimur íbúðum Lögreglan á Eskifirði er nú að störfum í tveimur íbúðum á sitthvorri hæðinni í fjölbýlishúsi við Blómvang á Egilsstöðum, þar sem maður fannst látinn í morgun, en grunur leikur á að andlát hans hafi borið að með voveiflegum hætti. 7. maí 2013 15:50