Umboðsmaður Alþingis segir framkvæmd verðtryggingar löglega Valur Grettisson skrifar 11. júlí 2013 14:21 Róbert Spanó er settur umboðsmaður Alþingis.
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að innheimta á verðtryggðu lánsfé verðtryggðra lána sé lögleg. Hagsmunasamtök heimilanna leituðu til umboðsmanns Alþingis og kvörtuðu yfir því að fyrirmæli reglna Seðlabanka Íslands frá 2001 um framkvæmd verðtryggingar skorti lagastoð. Af því leiddi að innheimta á verðtryggðu lánsfé væri ólögmæt í þeirri mynd sem henni væri háttað. Bentu samtökin á að í reglunum væri kveðið á um verðtryggingu láns með breytingu á „höfuðstóli“ láns. Þá héldu þau ennfremur fram að í lögum um vexti og verðtryggingu, sem reglurnar grundvallist á, væri hins vegar kveðið á um verðtryggingu „greiðslna“. Að mati samtakanna yrðu lögin því ekki skilin á annan hátt en þann að verðbætur mætti einungis leggja við afborganir lána en ekki höfuðstól lánsfjár. Á heimasíðu umboðsmanns Alþingis kemur fram að settur umboðsmaður rakti í meginatriðum þá löggjöf sem gilt hefur um verðtryggingu hér á landi síðustu áratugi, allt frá setningu laga nr. 71/1966 um verðtryggingu fjárskuldbindinga til ákvæða gildandi laga um vexti og verðtryggingu frá 2001. Leit settur umboðsmaður sérstaklega til markmiðs þess að komið var á almennri verðtryggingu með lögum frá 1979 að höfuðstóll skuldar breyttist með verðlagsþróun. Væri það með skýrum hætti tekið fram í lögunum. Þegar litið væri með heildstæðum hætti til þeirra breytinga sem gerðar hefðu verið á lagareglum um verðtryggingu allt til gildandi laga frá árinu 2001 yrði ekki dregin sú ályktun að staðið hafi til að gera breytingar á framkvæmd verðtryggingar eins og henni hefur síðan verið háttað. Svo segir í niðurstöðu umboðsmanns: Að virtu orðalagi 13. og 14. gr. laga nr. 38/2001, samhengi þeirra við önnur ákvæði laganna og forsögu löggjafar um verðtryggingu, varð það niðurstaða setts umboðsmanns Alþingis að ekki yrði annað fullyrt en að það fyrirkomulag er mælt væri fyrir um í reglum Seðlabanka Íslands nr. 492/2001 væri í samræmi við lög.Fyrir áhugasama má nálgast álitið hér.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira