Donni aðstoðar Magga Gylfa hjá Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2013 06:00 Halldór Jón Sigurðsson. Mynd/www.tindastoll.is
Halldór Jón Sigurðsson, þekktastur undir gælunafninu Donni, hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Val en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Halldór Jón Sigurðsson mun því aðstoða Magnús Gylfason í Pepsi-deildinni næsta sumar en Valsmenn urðu í 5. sæti á fyrsta tímabili sínu undir stjórn Magga Gylfa. Halldór Jón Sigurðsson er þrítugur en hefur enga síður þjálfað meistaraflokkslið Tindastóls frá árinu 2011 og varð fyrst yfirþjálfari félagsins 24 ára gamall. Halldór stýrði Tindastólsliðinu í 1. deild karla undanfarin tvö sumur en liðið endaði í 9. sæti deildarinnar í sumar. „Donni sem hefur náð eftirtektaverðum árangri sem þjálfari tók við liði Tindastóls í júní 2011 sem þá var í 2.deild og leiddi þá til sigurs í deildinni. Hann hélt síðan áfram þjálfun liðsins í 1.deild 2012-2013 með afburða árangri. Sem leikmaður lék Donni 98 leiki í deild og bikar með Tindastól, Víking og ÍA," segir í fréttinni á heimasíðu Vals. Donni er með UEFA A gráðu frá KSÍ og er íþrótta - og heilsufræðingur að mennt. Hann kennir íþróttir og sund við Hvaleyraskóla í Hafnarfirði. „Donni er með efnilegustu þjálfurum á Íslandi í dag enda voru mörg lið sem höfðu áhuga á að fá hann til starfa. Það er okkur Valsmönnum mikið gleðiefni að hafa fengið Donna í Val og væntum við mikils af samstarfinu við hann," segir ennfremur í fréttinni á heimasíðu Vals.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Færeyingar taka upp VAR Fótbolti Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Handbolti Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Enski boltinn Sandra María með þrennu og er markahæst í Þýskalandi Fótbolti Dregið í enska bikarnum: Mávarnir fljúga til Manchester Enski boltinn Barton dæmdur í hálfs árs fangelsi Enski boltinn Heimir Hallgrímsson og Eyjólfur Sverrisson spá báðir vítakeppni Íslenski boltinn Átta liða úrslitin á HM klár Handbolti Fleiri fréttir Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Damir Muminovic til Grindavíkur Vestramenn sækja son sinn suður Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Sjá meira