Miklar skemmdir urðu á raforkulínum Gunnar Reynir Valþórrson og Hafþór Gunnarsson skrifar 2. janúar 2013 19:59
Raforkumálin á Vestfjörðum eru komin í samt lag eftir að óveður síðustu daga olli víðtæku rafmagnsleysi á svæðinu. Orkubússtjóri segir að nú verði sest yfir atburði síðustu daga og reynt að meta hvað betur megi fara í raforkumálum Vestfirðinga. Miklar skemmdir urðu á raforkulínum í óveðrinu og þá komu upp bilanir í varaaflvélum sem eiga að sjá fólki fyrir rafmagni þegar línurnar detta út. Þá mátti litlu muna að fjarskiptakerfi færu algerlega á hliðina af völdum rafmagnsleysisins og hitinn fór af víða þar sem hús eru rafhituð. „Vissulega má draga einvherja lærdóma af þessu og við munum fara yfir atburðarrásina og gera okkur grein fyrir því hvar kann að hafa farið úrskeiðis. En það er ekki kominn tími til að segja nákvæmlega hvað það var," segir Kristján Haraldsson, orkustjóri. Kristján segir að varaaflvélar á svæðinu séu komnar til ára sinna. „Í keyrslunni þá biluðu því miður fjórar vélar. En það tókst að gera við þær allar á fyrsta laugardeginum. Þannig að þeir sem urðu lengst rafmagnslausir á Ísafirði urðu það vegna þess að það bilaði spennustöð í einu hverfinu. Þá hefði ekki skipt neinu máli þó að varaaflið hefði verið í lagi," segir hann. Að sögn Kristjáns er Landsnet með áform um að byggja tíu megavatta díselrafstöð í Bolungarvík og hefði hún verið komin í gagnið hefði hún dugað til að koma í veg fyrir vandræði á norðanverðum vestfjörðum. Fjarskiptin á svæðinu fóru einnig úr skorðum og mátti litlu muna að geymahleðslur hefðu alfarið klárast. „Það er alveg klárt að fjarskiptin verða að vera í lagi og við þurfum að koma rafmagni eins fljótt og hægt er," segir hann og þakkar starfsmönnum orkubúsins fyrir vel unnin störf. En þrátt fyrir vandræði síðustu daga sáu heimamenn þó ljósa punkta í myrkrinu og þótti rafmagnsleysið kósí og rómantískt. Og við þetta má bæta að ákveðið hefur verið að loka svæðinu norðan göngubrúar í Hvosinni á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. Miklar snjóhengjur eru í bökkunum þar fyrir ofan og talin er hætta á að þær falli fram.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Sjá meira