Thelma fær ekki að bera vitni í meiðyrðamáli Gunnars í Krossinum Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 23. október 2013 14:46 Gunnar Þorsteinsson og Thelma Ásdísardóttir.
Thelma Ásdísardóttir, ráðgjafi fórnarlamba kynferðisofbeldis hjá samtökunum Drekaslóð, fær ekki að gefa skýrslu við aðalmeðferð í meiðyrðamáli Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum gegn Vefpressunni, útgáfufélagi Pressunnar. Frá þessu greinir á mbl.is. Gunnar stefndi Vefpressunni ásamt tveimur konum sem sökuðu Gunnar um kynferðisbrot og flutti Pressan fréttir af því. Hann krafðist 15 milljóna í skaðabætur, ásamt afsökunarbeiðni frá stefndu. Lögmaður kvennanna krafðist þess að Thelma Ásdísardóttir fengi að bera vitni í málinu þar sem tvær aðrar konur hefðu leitað aðstoðar hennar og gengist undir meðferð hjá henni. Gunnar heldur því fram að um sé að ræða upplognar sakir en lögmaðurinn telur að Thelma gæti upplýst um málsatvik að þessu leyti gæfist henni kostur á að bera vitni í málinu. Þannig væri hægt að komast að því hvort ummælin sem féllu í umfjöllun Pressunnar væru rétt. Lögmaður Gunnars sagði lagaumgjörðin skýr að þessu leyti, vitni gætu aðeins skýrt frá atvikum máls sem þau hafa upplifað af eigin raun en ekki sérfræðiatriði. Thelma hafi ekki verið viðstödd þessa atburði og hún hafi hitt konurnar löngu eftir að atvik áttu sér stað. Dómarinn tók sér um hálftíma frest til að kveða upp úrskurð sem var á þá leið að kröfu kvennanna um að Thelma fengi að bera vitni var hafnað. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð í málinu fari fram 18. nóvember en það gæti frestast ef úrskurður þessur verður kærður til Hæstaréttar.
Meiðyrðamál Gunnars í Krossinum Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira