Óvenjumikill munur á veðri í suðri og norðri Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 9. júlí 2013 12:00 Veitingahúsaeigendur í Reykjavík bregðast við rigningunni með nýstárlegum lausnum á sama tíma og Akureyringar hafa sjaldan upplifað svo sólríkt sumar. Íbúar á Ísafirði fögnuðu sól gærdagsins en segja ferðamenn þó ekki láta leiðindaveður stöðva sig. Sumarveðrið hefur verið með ólíkasta móti á hverju landshorni fyrir sig. „
Það er hitaskúr hjá okkur í dag, eða útlandarigning eins og við köllum það,“ segir Þórhildur Gísladóttir, starfsmaður Akureyrarstofu. Veðrið hefur leikið við íbúa Akureyrar í sumar, meðalhitinn í júní mældist 11,4 stig og hefur ekki mælst svo hár í 60 ár. Þar að auki hefur verið óvenju sólríkt í bænum, 84 sólskinstundum yfir meðaltali fyrri ára. Þórhildur segir að mikið líf sé í bænum. Hún segist taka eftir því að bæði ferðamenn og Íslendingar styðjist mikið við veðurspána við ferðaundirbúning. „Við eigum bara von á því að allir komi hingað í sumarfrí,“ segir hún og hlær. Erla Sighvatsdóttir, íbúi á Ísafirði og starfsmaður í upplýsingamiðstöð Vestfjarða, var einnig glaðbeitt þegar Fréttablaðið náði af henni tali. „Það er sól í dag. Það hefur góð áhrif á stemninguna í bænum,“ segir hún en fullyrðir að ef fólk ætli sér að koma í bæinn þá láti það ekki slæmt veður stöðva sig. „Ef veðrið er leiðinlegt þá er hægt að fara á söfn,“ tekur hún sem dæmi. „En auðvitað sjást fleiri á ferli í góðu veðri.“ Í Reykjavík var úrkoma í júní 30 prósentum yfir meðallagi auk þess sem óvenju sólarlítið var í mánuðinum eða 90 stundum undir meðaltali júnímánaða síðustu tíu ára. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa því lítið séð til sólar í sumar og búist er við því að veður verði með sama hætti eitthvað fram í júlí. „Salan er mikið minni en hún er vön að vera á þessum árstíma,“ segir Guðný Atladóttir, framkvæmdastjóri Kaffi París við Austurstræti. „Fólk vill geta setið úti og Íslendingarnir, sem eru vanir að birtast um leið og sólin, hafa aðeins náð nokkrum dögum hjá okkur.“ Hún segist þó ekki af baki dottin. „Við erum að skapa kósí rigningarstemningu. Við keyptum sólhlífar svo að fólk gæti setið úti, erum með teppi og kertaljós.“ Aldrei áður hefur verið þörf á því að notast við hlífar í tuttugu ára sögu veitingastaðarins.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira