Vill átak í grasslætti Ingveldur Geirsdóttir skrifar 9. júlí 2013 09:51
Ásýnd Reykjavíkurborgar líður fyrir það hversu sjaldan græn svæði eru slegin að mati sjálfstæðismanns í borginni. Borgarstarfsmaður segir mikla vætutíð og grassprettu í sumar hafa haft áhrif á sláttinn. Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagði fram tillögu í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur þess efnis að gert verði átak í grasslætti og almennri umhirðu á opnum grænum svæðum í borginni. Í tillögunni segir að þriðja árið í röð sé grassláttur langt frá því að vera viðunandi og að ásýnd borgarinnar líði verulega fyrir það. „Ég vil sjá að það sé slegið oftar og það sé byrjað fyrr, vegna þess að það hefur verið byrjað alltof seint og slegið sjaldnar en var gert áður. En þetta hefur ekki aðeins með ásýnd borgarinnar að gera, þetta er líka lýðheilsumál og heilbrigðismál því það eru fjölmargir sem eru með frjókornaofnæmi og frjókornin aukast í andrúmsloftinu ef það er slegið sjaldnar," segir Marta. Marta segir slætti sinnt hvað verst í úthverfunum, þau sitji á hakanum. „Það er lágmark að þegar skattar og gjöld eru í hæstu hæðum í borginni að þessari þjónustu sé sinnt." Sláttur í borginni hófst í lok maí. Júní var vætusamur og grasspretta mikil sem gerði slátturmönnum erfitt fyrir. Fjórar umferðir eru farnar yfir stærstu svæðin í sumar og vonir standa til að ná tveimur umferðum yfir minni svæðin. „Stærstu svæðin eru á áætlun og við erum að gefa í með minni svæðin. Við erum búin að bæta við vélum og vinnum lengur til að ná því og við klárum fyrstu umferðina í næstu viku," segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir skrifstofustjóri yfir rekstri og umhirðu borgarlandsins. Hún segir vissulega nokkuð seint að vera að klára fyrstu umferð í byrjun júlí. En grasvöxtur sé búinn að vera gríðarlegur og erfitt að ráða við grasið.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira