Tími til kominn að skoða Dróma 9. júlí 2013 19:17 Sævar Þór Jónsson lögmaður segir orðið tímabært fyrir eftirlitsaðila að taka Dróma til skoðunar.
Drómi krefur konu um tuttugu milljónir króna í dráttarvexti af tæplega þrjátíu milljón króna láni. Konan er í greiðsluskjóli og er því óheimilt að greiða af skuldum sínum. Konan kærði í dag fjóra stjórnendur Dróma til embættis sérstaks saksóknara vegna innheimtu ólögmætra dráttarvaxta. Á árunum 2006 og 2007 tók Ásthildur B. Guðlaugsdóttir þriggja barna móðir úr Hafnarfirði tvö gengistryggð fasteignalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum upp á rúmar 28 milljónir samanlagt. Eftir hrun fer lánið til Dróma sem annast innheimtu lána sem Frjálsi og SPRON veittu. Hún skuldar ríflega fjörtíu og eina milljón áður en Hæstiréttur dæmir gengislánið ólöglegt. „Hún fær leiðréttingu samkvæmt dómum hæstaréttar og lánin fara í rúmlega 26 milljónir, svo fer hún í greiðsluskjól og á þessum tíma hafa lánin núna með dráttarvöxtum farið upp í 42 milljónir. Ef hún gat ekki greitt af láninu fyrir leiðréttingu mun hún svo sannarlega ekki geta greitt af því í dag," segir Sævar Þór Jónsson lögmaður Ásthildar. Ásthildur hefur ekki greitt af láninu í tvö ár eða frá því hún leitaði til Umboðsmanns skuldara í ársbyrjun 2011 vegna greiðsluerfiðleika og var sett í greiðsluskjól. Í mars á þessu ári fékk hún bréf frá Dróma þar sem segir að hún eigi að greiða tvær milljónir inn á fjörtíu og tveggja milljón króna kröfu þeirra til að hún geti byrjað að borga af henni mánaðarlega. Ásthildur fór ásamt lögmanni sínum og fulltrúum hópsins Samstaða gegn Dróma, sem stendur að baki henni, með kæru til embættis Sérstaks saksóknara í morgun. Kæran er á hendur fjórum stjórnendum Frjálsa fyrir ólögmæta innheimtu dráttarvaxta í gegnum Dróma og fyrir brot á hegningarlögum. „Hún er í greiðsluskjóli og getur þar af leiðandi ekki greitt af skuldum sínu, henni er ekki heimilt að gera það en á sama tíma ætlar Frjálsi að hámarka virði sinna krafna með því að bæta við dráttarvöxtum upp á átján og hálfa milljón. Við teljum það vera brot á almennum hegningarlögum og viljum láta reyna á það," segir Sævar. Ásthildur segir samskipti sín við Dróma búin að vera helvíti á jörð og að hún lifi í mikilli óvissu í dag. „Þú veist ekki hvort þú haldir íbúðinni eða farir á götuna, það getur enginn svarað," segir Ásthildur Sævar segir Dróma ganga mun lengra en önnur fjármálafyrirtæki. „Það að stjórnendur Dróma og Frjálsa geti tekið ákvarðanir með þessum hætti það auðvitað varðar almenn hegningarlög og auðvitað er orðið tímabært fyrir eftirlitsaðila að taka til skoðunar þessa starfsemi," segir Sævar að lokum.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira