Óttast að 120 störf hverfi með kvótanum Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 4. júlí 2013 07:00 Ísfirðingar fjölmenntu niður á höfn til að gæða sér á sjávarréttum og knýja á um málstaðinn þegar rækjubátar komu úr síðustu ferð. Mynd/Sveinbjörn
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hvetur sjávar- og landbúnaðarráðherra að taka tillit til þeirra hagsmuna sem í húfi eru á norðanverðum Vestfjörðum þegar hann tekur ákvörðun um framhald úthafsrækjuveiða. Í ályktun bæjarráðs segir að störf 120 manns séu í húfi. Jón Guðbjartsson, stjórnarformaður rækjuvinnslunnar Kamps, segir að framtíð veiðanna geti ráðist með þessari ákvörðun. Árið 2010 gaf Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegsráðherra, úthafsrækjuveiðar frjálsar. Stjórnvöld stöðvuðu þær hins vegar síðastliðinn mánudag og hafa látið að því liggja að tilefni sé til breytinga á stjórnun þeirra. „Á þessum þremur árum hefur rækjuvinnslan Kampi byggt gríðarlega mikið upp hér á Ísafirði,“ segir Daníel Jakobsson bæjarstjóri. „Til dæmis hafa þeir tekið atvinnuhúsnæði í gegn sem áður var lítil reisn yfir.“ Hann segir Ísfirðinga óttast að úthafsrækjukvótinn verði úthlutaður eldri kvótahöfum, það er að segja þeim sem áttu kvótann áður en veiðarnar voru gefnar frjálsar. Haft er eftir Brynjari Ingasyni í Kampa á fréttavefnum BB að þá hafi kvótahafar veitt 12 prósent kvótans meðan 88 prósent voru leigð út. Jón Guðbjartsson segir að ef sú leið verði farin muni rækjuvinnslan leggjast af. „Og þá mæli ég fyrir munn allra þeirra sem standa í rækjuvinnslu í dag,“ segir hann. Sex rækjuvinnslur eru nú starfandi í landinu. Slegið var til sjávarréttarveislu við höfnina á Ísafirði í hádeginu á þriðjudag þegar úthafsrækjubátar komu úr sinni síðustu ferð. Tilefni veislunnar var ekki klárt þegar Jón var inntur eftir því. „Ef stjórnvöld fara þá leið sem LÍÚ leggur til og bindur kvótann við útgerðirnar sem áttu skipin sem leigð voru til þessara veiða fyrir margt löngu þá ku þetta vera erfidrykkja því þá mun fólk ekki sjá þessa úthafsrækju aftur. En ef þetta verður falið þeim sem hafa stundað þessar veiðar undanfarið þá er þetta veisla,“ segir hann. Daníel gagnrýnir einnig þá meðhöndlun stjórnvalda að stöðva veiðarnar án þess að hafa svör á reiðum höndum um hvað taki við.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira