Skógrækt og skátar vilja munka að Úlfljótsvatni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. júlí 2013 14:00 Byggingar skátanna eru í forgrunni en skógræktarinnar fjær. "
Við höfum verið í viðræðum við kaþólsku kirkjuna um að fá munkareglu að Úlfljótsvatni sem gæti fengið leigða hjá okkur aðstöðu í íbúðarhúsinu og haft aðgang að kirkjunni," upplýsir Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands en félagið keypti hálfa jörðina að Úlfljótsvatni í árslok 2011, kirkjuna, íbúðarhús og útihús. "Þarna er 1.500 hektara land með mikil tækifæri til skógræktar, skógarhöggs og vinnslu úr trjám," segir Magnús sem tekur fram að skátarnir eigi enn ítök á staðnum. "Skátarnir og Skógræktarfélag Íslands standa saman að málum og hafa myndað ákveðið félag um Úlfljótsvatn. Við í skógræktinni erum þá eiginlega bændurnir á svæðinu. Okkar hlutverk er að rækta skóg og gefa almenningi kost á að fara frjáls um þær náttúruperlur sem við tökum í fóstur."En hvað hyggst Magnús fyrir með munkana? "Við lítum til Benediktsreglunnar. Þar iðka munkarnir trú sína í átta tíma, vinna í átta tíma og hvíla sig í átta tíma. Munkarnir eru oft og tíðum góðir handverksmenn. Benediktsmunkar brugga til dæmis prýðilegan bjór! Eins og þú heyrir er þetta ekki hugsað til fimm ára, tíu ára eða tuttugu ára, heldur til langs tíma." Hann segir allt í sambandi við munkana gert í fullri sátt við skátana. "Það eru viðræður í gangi um málið og ég vona að það endi eins og báðir aðilar leggja upp með, að þetta verði að veruleika.""Við lítum til Benediktsreglunnar. Þar iðka munkarnir trú sína í átta tíma, vinna í átta tíma og hvíla sig í átta tíma,“ segir Magnús.Mynd/ArnþórUpptaktur Úlfljótsvatnshátíðarinnar, sem hefst klukkan 12 á laugardaginn og stendur til klukkan 17 á sunnudag, gæti verið vísbending um það sem koma skal. Þá syngur herra Pétur Bürcher kaþólska messu í kirkjunni. Síðan rekur hver viðburðurinn annan. Nefna má göngu- og rútuferðir um nágrennið, stutt erindi þar sem sérfræðingar fjalla um fuglalíf, urriða og fornminjar á Úlfljótsvatni, tónleika með lögum og ljóðum sunnlenskra skálda, minningar, sögur og myndasýningu frá ýmsum tímum af fólki á Úlfljótsvatni við leik og störf, að ógleymdri messu frú Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands á hádegi á sunnudeginum. Sem sagt, fjölþætt dagskrá og hún er í höndum Hollvina Grímsness.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira