"Maður spyr sig hvort þeir hafi eitthvað að fela“ 6. febrúar 2013 14:00 „
Já, við hvetjum neytendur til þess að vera vel á verði og íhuga það vandlega hvort það sé ástæða til þess að beina viðskiptum sínum annað en til aðila sem ekki treysta sér til þess að hleypa fulltrúm neytenda inn í verslanir sínar," segir hagfræðingur ASÍ. Forsvarsmenn Hagkaups hafa ákveðið að hætta þátttöku í verðkönnunum ASÍ, að þeirra sögn eftir árangurslausar athugasemdir um langt skeið við framkvæmd og framsetningu þeirra. Verðkannanir samtakanna hafa, að mati forsvarsmanna Hagkaups, verið ómarktækar um nokkurra missera skeið. Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa, segir kannanir ASÍ ekki mæla markaðinn í heild heldur nánast eingöngu lágvöruverðsmarkaðinn. Hann bendir á að Nóatún, Samkaup Úrval, Strax, Þín verslun, Víðir, Kostur, 10-11 og Melabúðin hafi ýmist dregið sig úr verðkönnuninni eða verð sé ekki kannað þar af hálfu ASÍ. Þrátt fyrir að Hagkaup sé með lægra verð en fjöldi verslana séu verslanir Hagkaupa ítrekað sagðar með hæsta verðið. Henný Hinz hagfræðingur ASÍ vísaði þessu á bug í fréttum Bylgjunnar í dag. „Nei, ég kannast nú ekki við það að allar þessar verslanir hafi dregið sig út úr könnunum hjá okkur. Kostur, Víðir og Nóatún ásamt Hagkaupum hafa formlega vísað okkur út úr sínum verslunum en aðrar verslanir hafa ekki gert það" Henný segir verðlagseftirlit ASÍ einbeita sér að verslunum þar sem heimilin geri magninnkaup. „Þar hefur þunginn í okkar verðlagseftirliti legið einfaldlega vegna þess að með því teljum við að við séum að upplýsa neytendur með sem bestum hætti um þeirra helstu innkaup" Henný segir að vissulega megi endurskoða alla hluti og ASÍ hlusti á allar athugasemdir. Hún undrast að Hagkaup ákveði nú að vísa verðlagseftirliti ASÍ út úr verslunum sínum. „Og þar með koma í veg fyrir að við getum upplýst neytendur. Maður spyr sig að því hvort þeir hafi eitthvað að fela og hafi í hyggju að hækka verð mikið í sínum verslunum á næstunni" Aðspurð hvort ástæða sé fyrir neytendur að hafa augun opin gagnvart mögulegum verðlagshækkunum segir Henný: „Já, við hvetjum neytendur til þess að vera vel á verði og íhuga það vandlega hvort það sé ástæða til þess að beina viðskiptum sínum annað en til aðila sem ekki treysta sér til þess að hleypa fulltrúm neytenda inn í verslanir sínar," sagði Henný í fréttum á Bylgjunni klukkan 14. UppfærtASÍ birtir frétt varðandi málið á heimasíðu sinni í dag. Þar segir sambandið verslanir Hagkaups, Kosts, Nóatúns og Víðis allar neita neytendum um eðlilegar og sjálfsagðar upplýsingar um verðlag í verslunum sínum með því að vísa verðtökufólki ASÍ á dyr. Ástæða sé til þess að vara neytendur við að versla í þessum verslunum því ætla má að þær leiti skjóls til verðhækkana í því að útiloka fulltrúa neytenda úr verslunum sínum og gera þeim óklefit að sinna sjálfsögðu aðhalds- og upplýsingahlutverki sínu. „Launafólki eru með þessu sendar kaldar kveðjur og ljóst að þessir aðilar ætla ekki að sýna samstöðu í því að halda hér verðbólgu í skefjum á komandi mánuðum," eins og segir í fréttinni á heimasíðu ASÍ.Frétt ASÍ má sjá með því að smella hér.
Tengdar fréttir Segja mælingar ASÍ villandi fyrir neytendur Forsvarsmenn Hagkaups hafa ákveðið að hætta þátttöku í verðkönnunum Alþýðusambands Íslands, ASÍ. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir árangurslausar athugasemdir við framkvæmd og framsetningu þeirra um langt skeið. 6. febrúar 2013 13:13 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Sjá meira
Segja mælingar ASÍ villandi fyrir neytendur Forsvarsmenn Hagkaups hafa ákveðið að hætta þátttöku í verðkönnunum Alþýðusambands Íslands, ASÍ. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir árangurslausar athugasemdir við framkvæmd og framsetningu þeirra um langt skeið. 6. febrúar 2013 13:13