Sérstöku veiðigjaldi breytt 8. júní 2013 07:00 Sigurður Ingi Jóhannsson
Ný ríkisstjórn stefnir að því að breyta lögum um sérstakt veiðigjald strax á sumarþingi. Stefnt er að bráðabirgðabreytingum til eins árs en innheimta sérstaka veiðigjaldsins hefur verið í uppnámi þar sem nauðsynleg gögn til að reikna gjaldið skortir. Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra segir að stefnt sé að því að leggja fram frumvarp strax í næstu viku. Hann segist þó ekki geta fjallað nákvæmlega um innihaldið enda hafi frumvarpið ekki verið afgreitt úr ríkisstjórn né farið fyrir þingflokka. „Lögin sem eiga að taka gildi 1. september eru óframkvæmanleg. Við erum hins vegar ekki tilbúin með nýja aðferðarfræði. Það þýðir að til þess að hægt sé að leggja á eitthvert sérstakt veiðigjald þarf að fara bráðabirgðaákvæðisleið til eins árs. Þannig taka eldri lögin aldrei gildi þar sem bráðabirgðaákvæði mun gilda fyrst um sinn og svo reiknum við með því að ný lög taki við þegar bráðabirgðaákvæðinu sleppir,“ segir Sigurður Ingi. Alþingi samþykkti lög um sérstakt veiðigjald í lok júní 2012 en auk þess leggur ríkið á annað og talsvert lægra almennt veiðigjald. Kveða lögin um sérstaka veiðigjaldið á um að útgerðir greiði ákveðið hlutfall af framlegð í gjald en fyrsta árið var þó ákveðið að byggja gjaldtökuna á bráðabirgðaúrræði þess efnis að veiðigjaldið sé föst krónutala á hvert þorskígildiskíló. Samkvæmt núgildandi lögum á hlutfallsveiðigjaldið að gilda frá næsta fiskveiðiári, sem hefst 1. september, en sú innheimta er í uppnámi þar sem veiðigjaldsnefnd skortir gögn til þess að reikna út nákvæmt gjald. Sigurður Ingi segist reikna með því að bráðabirgðagjaldtakan verði í formi fastrar krónutölu á þorskígildiskíló en getur þó ekki fjallað um útfærsluna í smáatriðum. Þá sagðist hann heldur ekki geta sagt til um hvort sérstaka veiðigjaldið verði lægra en á yfirstandandi fiskveiðiári. Loks segir Sigurður Ingi að þegar komi að varanlegri endurskoðun sérstaka veiðigjaldsins þurfi að leita leiða til að sjávarútvegurinn geti staðið undir sérstakri gjaldtöku. „Við vitum að álagningin á þessu ári hefur haft mikil áhrif á sjávarútveginn og þá sérstaklega á minni og meðalstór fyrirtæki. Við viljum að ríkissjóður fái tekjur en greinin þarf líka að geta eflst,“ segir Sigurður. Áætlað hefur verið að tekjur ríkissjóðs af veiðigjöldum verði 12,5 til 13 milljarðar króna á yfirstandandi fiskveiðiári og um 15 milljarðar á því næsta. Samkvæmt veiðigjaldalögunum á gjaldið þar að auki að hækka nokkuð á hverju ári til fiskveiðiársins 2016 til 2017.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið.“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira