Nýfæddir selkópar og yrðlingar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Jóhannes Stefánsson skrifar 8. júní 2013 14:00
Tveir nýfæddir selskópar eru nú í selatjörninni í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum. Urturnar Esja og Særún eru mæður kópanna, en enn er beðið eftir að Kobba kæpi líka. Fyrri kópurinn fæddist seinastliðinn fimmtudag en sá síðari nú í morgun. Urturnar passa vel upp á kópana svo ekki er ráðlegt að reyna að klappa þeim fyrst um sinn. Báðir eru kóparnir farnir að elta mæður sínar um tjörnina og virðast nokkuð sprækir að sögn Lilju Björk Vilhelmsdóttur, fræðslufulltrúa garðsins. „Já þeir eru víst orðnir tveir, það kom annar í morgun. Þeim heilsast mjög vel og urturnar eru svo natnar við þá fyrstu vikurnar, þannig að þeir fara bara fljótlega á sund eftir að þeir koma í heiminn." Aðspurð að því hvort búið sé að gefa kópunum nöfn segir Lilja: „Nei það er ekki búið að kyngreina þá ennþá. Það er dálítið erfitt að kyngreina þá. En Sæmundur Skúli kom til okkar á fimmtudagsmorguninn og honum fannst viðeigandi ef fyrsti kópurinn væri brimill að nefna hann Sæmundur. Sæmundur á selnum, það er viðeigandi og skemmtilegt nafn." Lilja segir kópana munu verða í garðinum í allt sumar en með haustinu fara þeir á aðra staði. En kóparnir eru ekki einu nýju íbúarnir í garðinum. „Nú eru komnir yrðlingar sem fara væntanlega að vappa út úr greninu sínu þá og þegar. Þeir eru líka miklir hnoðrar. Það er allavega búið að telja níu en þeir þurfa að fá að vera í friði fyrstu vikurnar þannig að húsið þeirra er reyndar lokað á meðan það er. En á næstu vikum þá ættu þeir að fara á vapp út með mömmunni."
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnari Hauki „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Sjá meira