Endurskoðar ákvörðun um stækkun bannsvæði hvalveiða LVP skrifar 8. júní 2013 18:30
Nýr sjávarútvegsráðherra telur að ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar um að stækka bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa hafi verið pólitísk ákvörðun sem ekki hafi verið byggð á vísindalegum rökum. Hann endurskoðar nú ákvörðunina og segir koma til greina að draga hana til baka. Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi atvinnuvegaráðherra, stækkaði bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa tveimur dögum áður en hann lét af embætti. Áður en bannið tók gildi náði veiðisvæðið frá Garðskaga og norður að Akranesi. Eftir að það tók gildi er hins vegar bannað að veiða hvali innan línu sem nær frá Garðskaga að Skógarnesi á Snæfellsnesi. Steingrímur taldi sig með ákvörðuninni vera að taka tillit bæði til hrefnuveiðimanna og hvalaskoðunarfyrirtækja sem lengi höfðu þrýst á að griðarsvæði hvala yrði stækkað. Meirihluti nefndar sem að ráðherra skipaði vildi að gengið yrði lengra og veiðar bannaðar á öllum Faxaflóa. Hrefnuveiðimenn brugðust illa við stækkun bannsvæðisins og telja að áttatíu prósent veiðisvæða þeirra lendi innan þess. Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr sjávarútvegsráðherra, gangrýnir ákvörðun Steingríms og hefur undanfarið verið að endurskoða málið. „Mér fannst þetta vera mjög sérkennileg ákvörðun og tekin á síðustu dögum forvera míns í embætti,“ segir Sigurður Ingi. Hann segir til greina koma að draga ákvörðunina til baka. „Við höfum verið að skoða þetta mál og við munum klára það væntanlega eftir helgi þá skoðun. Það er svona margt sem bendir til þess að sú ákvörðun hafi ekki verið byggð á neinum vísindalegum rökum og hefur talsvert mikil áhrif á hrefnuveiðivertíðina akkúrat í sumar. En mjög umdeilt hvort hún hafi nokkur áhrif á hvalaskoðunina út af fyrir sig,“ segir Sigurður Ingi.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira