Ferðamenn lokkaðir með fornum goðum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. janúar 2013 07:00 Hjónin í Kaffi Loka eru í áhugahópi sem telur skreytingar á götuhornum í Goðahverfinu mundu skerpa á því hverjir varðveittu sagnir af norrænum goðum og laða fólk að hverfinu.Fréttablaðið/Stefán „
Nú þegar er farið að nota æsina í kvikmyndir í Ameríku og því enn frekari ástæða til að skerpa á því hverjir varðveittu sögurnar um hinn forna sið," segir áhugahópur sem vill samkeppni um myndskreytingar gatna í svokölluðu Goðahverfi. Að því er kemur fram í erindi Goðahópsins til skipulagsyfirvalda í Reykjavík teljast fimmtán götur til Goðahverfisins. Um er að ræða hverfið sunnan Skólavörðustígs. Þar eru götur sem bera nöfn hinna fornu ása úr norrænni goðafræði. Má þar nefna Lokastíg, Óðinsgötu, Þórsgötu, Freyjugötu og Baldursgötu. „Fyrstu hugmyndir eru að setja einhverjar upplýsingar, myndskreytingar, styttur eða eitthvað í þeim dúr á horn gatna í hverfinu," er útskýrt í bréfi Goðahópsins, sem kveður ekki hægt að reikna kostnaðinn fyrr en hugmyndasamkeppni ljúki. „Hins vegar var mat manna á fundi Goðahópsins að samkeppnin sem slík kostaði á bilinu 2 til 3 milljónir króna," segir hópurinn, sem óskar eftir að borgin kosti keppnina. „Fjármögnun framkvæmda verður síðan seinni tíma mál, en gert er ráð fyrir því að nokkrir aðilar komi að því, til dæmis fyrirtæki á svæðinu, styrktarsjóðir og Reykjavíkurborg." Goðahópurinn minnir á að snemma hafi götur í Reykjavík verði nefndar „til heiðurs hinum fornu goðum" og að ástæða sé til að minna á hvaðan þessi heiti séu komin. „Börn og fullorðnir úr hverfinu kenna sig frekar við hverfið ef því er haldið á lofti," segir í erindi hópsins, sem kveður fleiri merkingar mundu ýta undir að leiðsögumenn fylgdu íslenskum og erlendum ferðamönnum um hverfið og segðu af því sögur. „Þetta mun því hafa aðdráttarafl fyrir hverfið og Reykjavík sem ferðamannaborg. Þetta gæti líka orðið fordæmi fyrir önnur hverfi að hressa upp á ímynd sína." Goðahópurinn vill að Höfuðborgarstofa efni til hugmyndasamkeppni með listamönnum og auglýsingastofum. Miða yrði við myndskreytingar á götuhornum og ef til vill margmiðlunarupplýsingar um snjallsíma. Í Goðahópnum eru leiðsögumennirnir Steingrímur Gunnarsson, Friðrik Brekkan og Bjarni Reynarsson, Þórólfur Antonsson og Hrönn Vilhelmsdóttir sem eiga Kaffi Loka, borgarfulltrúinn Hjálmar Sveinsson, Valdís Árnadóttir hjá Norræna félaginu og Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Samtaka um söguferðaþjónustu. Erindi hópsins var vísað til meðferðar hjá skrifstofustjóra á síðasta fundi skipulagsráðs.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Erlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Fleiri fréttir Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Sjá meira