Innlent

Haukamálið rætt á bæjarstjórnarfundi í dag - segir ákvörðunina löglega

Gunnar Axel Axelsson.
Gunnar Axel Axelsson.
„Samkomulagið er til eins árs í senn og er háð fjárhagsáætlun hvers árs," segir Gunnar Axel Axelsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, spurður hvort skuldbinding bæjarráðs sem var samþykkt fyrir skömmu, um að Hafnarfjarðarbær keypti fimmtungshlut í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum, stangaðist á við sveitarstjórnarlög eins og haldið var fram í Fjarðarpóstinum fyrir um viku síðan.

Gunnar Axel segir ákvörðunina löglega en meðal annars kemur fram í lögunum að einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjárhag sveitarfélagsins. „Samkvæmt 35. grein laganna, samþykktum bæjarins og erindisbréfi bæjarráðs, sé ráðinu þó heimil fullnaðarákvörðun í málum sem eigi varða verulega fjárhags sveitarsjóðs, enda sé ekki ágreiningur um afgreiðsluna." Segir Gunnar Axel.

Hann segir þær spurningar sem fram hafa komið um hvort málið sé ekki af þeirri stærðargráðu að ástæða hafi verið til þess að vísa málinu til samþykktar í bæjarstjórn fullkomlega réttmætar. Málið hafi verið tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar í dag og þar hafi meðal annars komið fram að full samstaða væri um málið og afgreiðslu þess en jafnframt hafi það komið fram að verði einhverjar þær breytingar á forsendum samkomulagsins sem kalli á endurskoðun þess, þá sé verði það gert.

Gunnar Axel segir það alls ekki sjálfgefið að sveitarfélög grípi inn í mál af þessu tagi og í raun ætti slíkt ekki að koma til álita nema í þeim tilgangi að vernda hagsmuni bæjarins. Það hafi verið leiðarljós bæjarráðs í þessu máli og um það hafi verið full samstaða Fjárhagserfiðleika Hauka má meðal annars rekja til yfir eitt hundrað milljóna króna kúluláns í svissneskum frönkum sem félagið tók árið 2007 og átti að greiða 2009.

Félagið hefur ekki getað staðið í skilum með þessi lán. Bærinn hefur þegar greitt 62,6 milljónir króna sem skuldajöfnun á tveimur skuldabréfum Hauka hjá bæjarsjóði frá árunum 2001 og 2002. Í hverjum mánuði héðan frá í aldarfjórðung á bærinn síðan að borga mánaðarlega greiðslu inn á bankareikning Hauka til greiðslu á skuldum félagsins við Landsbankann. Fyrstu greiðslur nema 1,6 milljónunum króna en þær lækka út samningstímann, þar sem um lán með jöfnum afborgunum af höfuðstól er að ræða. Á móti kemur er Haukum settar ákveðnar kvaðir, svo sem lántökubanni.

Gunnar Axel segir samkomulagið með þeim hætti að útsvarsgreiðendur sitja ekki uppi með að borga fyrir óráðssíu þeirra sem stofnuðu til skuldanna. „Á móti greiðslum bæjarins koma eignir," segir Gunnar Axel en með þessari ákvörðun eignast bærinn hlut í fasteign Hauka á Ásvöllum.

Gunnar segir að samkomulagið með þeim hætti að bæjaryfirvöld þurfa að endurskoða samninginn á hverju ári. Bærinn getur að auki sagt honum upp einhliða með 6 mánaða fyrirvara. Það er því ekki þannig að bærinn hafi bókstaflega skuldbundið sig til þess að greiða af lánum Hauka næstu 25 árin.

Spurður hvort samkomulagið þyngi róðurinn hjá bænum, svarar Gunnar Axel því að samkomulagið geri það ekki.

Málið var rætt á bæjarstjórnarfundi en það var ekki til afgreiðslu þar. Þess má geta að bjögunaraðgerðin fékk öll greidd atkvæði í bæjarráði þegar hún var samþykkt.


Tengdar fréttir

Vafi á lögmæti vegna björgunar Hauka

Vafi er á því hvort Hafnarfjarðarbæ sé heimilt að kaupa fimmtungshlut Hauka í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum fyrir 271 milljón króna. Þetta kemur fram í úttekt í hafnfirska blaðinu Fjarðarpóstinum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×