Íslendingar halda 187 tónleika erlendis í mars 3. mars 2013 20:36
Um það bil tvöhundruð tónleikar íslenskra listamanna eru á dagskránni í mars, víðsvegar um heiminn. Útrás íslensks tónlistarfólks er því í fullum gangi en talið er að um met sé að ræða í einum mánuði. Útón, útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar hefur frá byrjun árs í fyrra haldið utan um og skrásett tónleika Íslendinga erlendis. Á heimasíðu Úton má finna alla tónleika íslendinga erlendis og marsmánuður sem nú er nýhafinn sker sig töluvert úr. Hvorki meira né minna en 187 tónleikar íslenskra sveita og listamanna eru skráðir, víðsvegar um heiminn. Listinn er raunar ekki tæmandi og segir Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri Útón að tónleikarnir verði líklegast um og yfir tvöhundruð þegar allt er talið. "Þetta kom mér rosalega á óvart, því við héldum að við værum að sjá ákveðið hámark í þessu síðasta sumar þegar það voru sjötíu tónleikar íslenskra hljómsveita í einum mánuði. Það fannst okkur rosalega mikið en að þetta skuli vera að losa tvöhundruð finnst mér alveg stórspaugilegt." Sigtryggur segir að þessi þróun hafi verið viðvarandi síðustu ár og að íslenskir listamenn séu sífellt að mynda betri og betri tengsl erlendis. Þá hefur Úton einnig staðið fyrir námskeiðum og fræðslukvöldum til þess að fræða kenna mönnum inn á bransann. Það hafa verið fræðslukvöld sem við höfum séð um og síðan verður til svo mikið af upplýsingum þegar fleiri og fleiri fara að spila erlendis að þá deilast þessar upplýsingar til baka inn í landið og nýtast fleirum. Ef við lítum til dagsins í dag má til dæmis sjá að ýmislegt er í boði. Tíu íslenskar sveitir troða upp og má þar nefna Sigur Rós í Manchester - Sólstafi í Berlín - Pascal Pignon á Ítalíu og FM Belfast í New York.
Mest lesið Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn Innlent Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Erlent „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Innlent Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Erlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Fleiri fréttir Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni Sjá meira