Almenningshagsmunir ættu að vera hafðir að leiðarljósi við orkusölu Karen Kjartansdóttir skrifar 12. júní 2013 19:03
Almenningshagsmunir verða að vera hafðir að leiðarljósi við sölu á raforku en erfitt er að sjá að það hafi verið gert þótt kveðið sé á um það í lögum. Svo virðist sem lögin hafi verið tekin beint upp frá Evrópusambandinu. Þetta kom fram í máli Stefáns Arnórssonar, prófessors við Háskóla Íslands og stjórnarmanns í Landsvirkjun á fundi þriggja nefnda á Alþingi í dag. Boðað var til sameiginlegs fundar atvinnu-, samgöngu-, og umhverfisnefndar Alþingis í morgun til að fjalla um stöðu Hellisheiðarvirkjun. Á fundinn voru einnig boðaðir gestir frá fjölda stofnana og fyrirtækja sem koma að nýtingu og rannsóknum á jarðvarma. Stefán Arnórsson, prófessor í jarðefnafræði og stjórnarmaður í Landsvirkjun, segir að Alþingi þurfi að breyta lögum sem tengjast orkufyrirtækjum til dæmis um mat á umhverfisáhrifum en hann segir lög um þau alls ekki henta jarðhita þar sem þau geri ekki ráð fyrir öllum þeim óvissuþáttum sem tengjast þeirri orkuöflun. Einnig segir hann þörf á að breyta raforkulögum frá 2003 en í þeim segir að almannahagsmunir eigi að vera hafðir að leiðarljósi. „Ég skil nú ekki hvernig það er hægt þegar yfir 80 prósent af seldri raforku í dag fer til stórnotenda nema þá að það væri hægt að selja raforkuna með þeim hagnaði að það væri hægt að greiða eitthvað til nærsamfélagsins, það er að segja í nágrenni virkjananna, og fjærsamfélagsins, það er að segja þjóðarinnar í heild og þá ríkisins. Þá væri almannahagsmunum borgið og menn ættu að skoða þetta en ekki taka þetta beint upp úr lögum frá Evrópusambandinu," segir Stefán. Á fundinn mættu einnig Bjarni Bjarnason, núverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, og Guðmundur Þóroddsson, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Þá greinir á um hvernig eigi að afla orkunnar sem upp á vantar. Núverandi vill nýta orku í Hverahlíð en sá fyrrverandi segir umræðuna öfugsnúna umhverfisvernd gegn álverum og vill fleiri viðhaldsholur við Hellisheiðarvirkjun en gallinn er sá að þar eru þegar fjöldi af lítið virkum holum. Mikið fé þarf til að bora hverja og eina holu þótt lítil vissa sé um það hvort hún komi nokkur tímann til með að nýtast.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira