Lífið

Lykill að góðu kynlífi

Viltu hressa upp á kynlífið í hjónabandinu?
Viltu hressa upp á kynlífið í hjónabandinu? MYND/Getty
Eftirfarandi kynlífsráð eru af vefsvæðinu  Heilsutorg.com.

Það er svo einkennilegt að við skulum miða okkar samlíf við rómantískar bíómyndir þar sem oft á tíðum eru heitar senur með kynlífi og allir fullir af losta og löngunum. En þetta er ekki raunveruleikinn. Ef þú hefur áhyggjur af kynlífinu í þínu sambandi eða hjónabandi gætu eftirfarandi lausnir hjálpað þér.

Fyrir alla muni passaðu upp á svefninn

Að liggja upp í rúmi og hlusta á makann hrjóta er alls ekki kynæsandi en sérfræðingar vilja meina að nægur svefn sé númer eitt ef þú vilt eiga gott samlíf með þínum maka.

Reyndu svo að hreyfa þig eitthvað

Góð útrás í ræktinni, kraft göngutúr eða skokk um hverfið keyrir í gang testosterone sem er hormón er hækkar kynþörfina. Ég tala nú ekki um að eftir hörku æfingu þá líður manni afar vel og þér finnst þú meira kynæsandi og finnur fyrir meira sjálfsöryggi í rúminu.

Keyptu þér líka eitthvað fallegt

Skrepptu í smá verslunarleiðangur og eyddu smá pening í sjálfa þig. Notaðu tíman vel og uppgötvaðu hvað það er sem þér finnst kynæsandi og kemur þér til hvort sem það eru falleg silki náttföt eða kynæsandi undirfatnaður að þá splæstu í það.

Komdu síðan við á heilsugæslunni

Hann gæti átt góð ráð til að aðstoða ef kynhvötin er lág. Einnig ef þú finnur fyrir sársauka við samfarir. Oft er lækkun á estrógeni ástæða þess að konur missa löngun í kynlíf. Vertu vakandi yfir því hvaða lyf þú ert að taka.

Eldamennskan kemur sér stundum vel

Ekki spara tímann sem þið eyðið saman í rúminu. Vertu þolinmóð/ur við makann þinn. Kynlíf er svolítið svona eins og að elda góða máltíð. Þú hendir ekkert einhverju í pott og leggur engan metnað í máltíðina og ætlast svo til þess að hún sé bragðgóð. Það sama má segja um kynlíf. Langur forleikur og jafnvel leikir til að æsa hvort annað upp er góð ávísun á hinn fullkomna endir.

Lestu meira hér - Heilsutorg.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.