Láttu kaupóðu vinkonu þína lesa þetta Ellý Ármanns skrifar 23. ágúst 2013 12:30 Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri Dohop.
Heimskort af H&M búðum sem sýnir hvar hægt er að fara í beinu flugi frá Íslandi beint í umræddar verslanir hefur flakkað á milli kaupóðra Íslendinga á Facebook svo vægt sé til orða tekið. Við höfðum samband við snillinginn á bak við myndina Lailu Sæunni Pétursdóttur, markaðsstjóra flugleitarvélarinnar Dohop. Skjaskot af HM.com.Snilldarhugmynd Hvernig datt þér í hug að merkja H&M verslanir inn á kortið? „Við vorum að spjalla saman í vinnunni og ég var að tala um að ég færi alltaf í H&M þegar ég færi til útlanda. Strákarnir náttúrulega könnuðust við slíkt og töluðu líka um lista frá konunum sínum eða vinkonum um hvað þeir ættu að kaupa fyrir þær í H&M," svarar Laila. Heimskortið sem sýnir fjölda H&M verslana.Mikilvæg atriði fyrir kaupóða „Þá kom fram sú hugmynd að búa til kort með H&M búðum og hvert hægt væri að komast í beinu flugi frá Íslandi. Svo þegar ég var að setja saman myndina og skoða H&M vefsíðuna þá ákvað ég að bæta við mikilvægum atriðum eins og flugtíma, flugverði og svo hversu margar H&M búðir væru í borginni sem flogið væri til," segir hún.Annað skjáskot. Þig langar í öll fötin sem þær eru í - er það ekki?Dohop birti síðan myndina á Facebook síðu sinni og blogginu, https://blog.dohop.is/, þar sem listann með öllum beinu flugunum og H&M búðunum er að finna. Laila segist hafa skemmt sér stórkostlega við að setja saman kortið og finna upplýsingarnar. „Ég var oft í Berlín þegar ég var barn og með því að vera garfa í þessu fann ég út að það eru 29 H&M búðir í Berlín og kannski er ég þess vegna svona H&M sjúk," bætir hún hlæjandi við. Í blogginu er einnig greint frá því hvert er ódýrast að fara og gista þar sem að Dohop er leitarsíða fyrir flug, hótel og bílaleigubíla. Laila verður kaupóð þegar hún stígur inn í H&M verslun eins og svo margir Íslendingar.Versluðu eins og kaupóðir Íslendingar Áttu eftirminnilega H&M reynslu til að deila með okkur? „Sögusvið eftirminnilegustu H&M reynslunnar minnar er Róm, en ég hafði verið á ferðalagi um Ítalíu í þrjár vikur með vinum mínum. Að sjálfsögðu urðum ég og ein vinkona mín að fara í H&M síðasta daginn." „Vinkona mín var búin að finna út að það væri ein H&M búð í Róm en hún væri örlítið út fyrir borgarmúrinn. Svo við drógum strákana í næsta leigubíl. Leigubíllinn keyrði með okkur ábyggilega í 30 mínútur og við allan tímann að rökræða um að hann væri pottþétt að fara vitlausa leið. Við báðum hann um að láta okkur svo út þegar við sáum götunafnið þar sem H&M átti að vera, þrátt fyrir mótmæli leigubílsstjórans. Gatan reyndist svo vera gatan endalausa. Við þurftum að taka annan leigubíl og þá komust við að því að H&M væri í risa stórri verslunarmiðstöð við enda götunnar - næstum í útjaðri Rómar. Þegar við komum þangað kysstum við næstum jörðina fyrir framan H&M." „Við versluðum eins og kaupóðir Íslendingar gera og enduðum að kaupa sitthvora ferðatöskuna til að koma öllu fyrir. En svo reyndist erfitt að fá leigubíl aftur inn í Róm og við héngum fyrir utan verslunarmiðstöðina eftir lokun í tvo tíma og ég að reyna hringja á einhverjar leigubílastöðvar og tala hrognaítölsku/ensku en ég kann sko ekkert í ítölsku. Við prófuðum að húkka einhverja bíla en ekkert gekk. Löbbuðum svo inn í smábæ sem var þarna um 20 mínútur frá, með fullar ferðatöskur í eftirdragi. Fundum einu sjoppuna sem var alveg að fara loka. Þar sat einn Pólverji sem talaði smá ensku - hjúkkit - því afgreiðslukonan gerði það ekki og hann náði að panta leigubíl fyrir okkur." „Biðum svo í klukkustund í viðbót og þá kom loks leigubíll en það var einn mesti skrjóður sem ég hef setið í og bílstjórinn sat á pappakassa, leit út eins og Einstein og var með ýmsa skrýtna kæki. Ég held að eftir þessa H&M ferð sé ég svo sannarlega reynslunni ríkari en er sko ekkert hætt að versla í H&M." Eftir smá umhugsun bætir svo Laila við: „Kannski ég ætti að bæta inn í kortið hvað það er langt í H&M búðirnar úr miðbæ borganna“ og skellihlær.Hver vill ekki eignast svona buxur? Þessi mynd kallar á kaffibolla.Dohop er líka á Facebook.
Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Fleiri fréttir Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Sjá meira