Vill nýtt mat fyrir breytt vegstæði um Teigsskóg Kristján Már Unnarsson skrifar 23. nóvember 2013 19:07
Vegagerðin hyggst hefja enn eina tilraun til að koma vegi um Teigsskóg á Vestfjörðum í gegnum umhverfismat. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra kvaðst á Alþingi vera bjartsýn um að það tækist. Það var með fyrstu verkum nýs ráðherra vegamála síðastliðið sumar að funda með Vestfirðingum um Teigsskóg og skoða hið umdeilda vegstæði í fylgd vegamálastjóra. Um leið fól Hanna Birna Vegagerðinni að reyna aftur að koma veginum í gegnum umhverfismat. Um mitt sumar hafnaði Skipulagsstofnun hins vegar drögum að nýrri matsáætlun, með þeim rökum að vegurinn væri búinn að fara í gegnum umhverfismat og verið hafnað.Leiðin sem Vegagerðin vill fara með Vestfjarðaveg til að losna við fjallvegina um Hjallaháls og Ódrjúgsháls.Vegagerðin gefst ekki upp og hyggst fyrir jól leggja fyrir Skipulagsstofnun enn nýja matsáætlun um breytta veglínu um skóginn og hefur stuðning ráðherra, en málið kom til umræðu á Alþingi í vikunni. „Mín afstaða hefur verið alveg ljós. Ég tel að það eigi að leggja vegstæðið með þeim hætti sem Vegagerðin hefur lagt til og hefur verið fyrsti kostur íbúa á svæðinu,“ sagði Hanna Birna. „Ég hefði talið að það væri farsælast, það væri öruggasta leiðin og ég tel einnig að það hafi verið komið mjög til móts við umhverfissjónarmið þar og vegurinn hafi verið lagfærður þannig að hann vinni betur með nágrenninu og umhverfinu á svæðinu. Mín von er ennþá sú að það takist og ég vona að við fáum svör við því sem allra fyrst,“ sagði ráðherrann á Alþingi.
Tengdar fréttir Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20. september 2011 13:03 Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56 Ný veglína raskar 6% af Teigsskógi Ákvörðun Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, um að reyna að koma Vestfjarðavegi í gegnum Teigsskóg, var fagnað á fundi Fjórðungssambands Vestfirðinga á Tálknafirði í dag. 21. júní 2013 18:54 Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira
Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg. 20. september 2011 13:03
Allt annað en Teigsskóg, segir Ögmundur Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur fallið frá því að láta Vestfjarðaveg liggja yfir hálsana tvö í Gufudalssveit og er tilbúinn að skoða alla aðra kosti nema þann að fara í gegnum Teigsskóg. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, segir að leiðin um Teigsskóg sé sú eina færa. 9. nóvember 2011 18:56
Ný veglína raskar 6% af Teigsskógi Ákvörðun Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, um að reyna að koma Vestfjarðavegi í gegnum Teigsskóg, var fagnað á fundi Fjórðungssambands Vestfirðinga á Tálknafirði í dag. 21. júní 2013 18:54