Íslenski boltinn

Birkir: Vonandi vanmeta Króatar okkur

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég er bara spenntur fyrir þessum leikjum og það sama má segja um allan hópinn,“ segir Birkir Bjarnason, leikamaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, í samtali við Arnar Björnsson, íþróttafréttamann Stöðvar 2, fyrir æfingu liðsins í gær.

Ísland mætir Króötum í mikilvægasta landsleik sögunnar á Laugardalsvelli á föstudagskvöldið. Liðin mætast í tvígang í umspili um laust sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu á næsta ári. Síðari leikurinn fer fram þann 19. nóvember Maksimir-vellinum í Zagreb.

„Það er mikilvægast fyrir okkar lið að halda markinu hreinu hér heima og það væri enn betra ef liðið gæti farið með sigur af hólmi.“

„Ég vona að Króatar vanmeti okkur og farið með hálfum hug inn í þessa leiki.“

Hægt er að sjá myndband af viðtalinu við Birki í spilaranum hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×