Íslenski boltinn

Fram hefur samþykkt tilboð Celtic í Hólmbert Aron

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/daníel
Knattspyrnudeild Fram hefur samþykkt tilboð skoska liðsins Celtic í Hólmbert Aron Friðjónsson en þetta staðfestir Sverrir Einarsson formaður knattspyrnudeildar Fram við vefsíðuna 433.is í dag.

Nú getur félagið hafið viðræður við leikmanninn sjálfan um samningskjör.

Hólmber Aron fór á reynslu til félagsins á dögunum og stóð sig greinilega vel.

Framherjinn gæti því verið á leiðinni til Skotlandsmeistaranna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×